Beint í efni

Af­mæl­is­lund­ur Garða­bæj­ar – 50 tré fyr­ir 50 ár

Fréttir
09.10.2026

Í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar hafa 50 tré verið gróðursett á opnu svæði við Hofstaðabraut, til móts við Kirkjulund. Trén mynda afmælislund Garðabæjar sem verður til marks um hálfrar aldar afmæli bæjarins um ókomna tíð.

Afmælislundurinn samanstendur af fjórum harðgerðum og vindþolnum trjátegundum; gráelri, ilmreyni, skrautreyni og fjallareyni. Upplýsingaskilti og bekkjum verður komið fyrir í lundinum næstkomandi vor.

Áhersla var lögð á að lundurinn væri vel staðsettur nálægt miðbæjarkjarna Garðabæjar. Afmælislundurinn verður notalegur áningarstaður þar sem bæjarbúar geta notið samveru og slakað á í fallegu umhverfi, steinsnar frá Garðatorgi.

Trén gróðursett í mildu haustveðri

Krakkar frá leikskólanum Kirkjubóli aðstoðuðu við gróðursetningu trjánna og lögðu sitt af mörkum við að koma þeim vel fyrir. Erla Bil, fyrrverandi garðyrkjustjóri Garðabæjar, kenndi krökkunum, bæjarstjóra og öðrum viðstöddum réttu handtökin. Að verki loknu var boðið upp á kakó, kleinur og notalega samverustund í mildu haustveðri.

„Við fengum hóp öflugra barna af tveimur elstu deilum Kirkjubóls til að aðstoða okkur við gróðursetningu trjánna undir handleiðslu Erlu Bil, fyrrverandi umhverfisstjóra Garðabæjar. Þetta var skemmtileg stund og nú bíðum við bara spennt eftir að sjá trén laufgast næsta vor og afmælislundinn okkar vaxa og dafna,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar.

50 harðgerð og vindþolin lauftré

Trjálundurinn mun setja fallegan svip á svæðið þegar trén laufgast næsta vor. Þau bera, að gráelri undanskildu, hvít blóm á sumrin og mynda rauð ber síðar á árinu. Á haustin skarta þau jafnframt gulum, appelsínugulum og rauðum haustlitum.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, naut aðstoðar öflugra barna af leikskólanum Kirkjubóli við að gróðursetja trén.
Í lundinum eru 50 harðgerð og vindþolin lauftré. Hvert tré táknar eitt ár í sögu bæjarins frá því að Garðahreppur varð Garðabær árið 1976.
Afmælislundur Garðabæjar – 50 tré fyrir 50 ár - Garðabær