Beint í efni

Mun­um eft­ir hvata­pen­ing­un­um

Fréttir
25.11.2026
Hvatapeningar 2026

Nú þegar áramótin nálgast er forráðafólk barna og unglinga í Garðabæ minnt á að nýta hvatapeninga ársins 2026 fyrir áramót. Ónýttir hvatapeningar geymast ekki milli ára.

Öll börn á aldrinum 5-18 ára, með lögheimili í Garðabæ, fá hvatapeninga. Hvatapeningar ársins 2026 eru 67.000 krónur á barn og þá má nýta til að greiða niður gjöld í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi sem stundað er reglulega.

Nú þegar áramótin nálgast er forráðafólk barna og unglinga í Garðabæ minnt á að nýta hvatapeninga ársins 2026 fyrir áramót. Ónýttir hvatapeningar geymast ekki milli ára.

Hægt er að sækja um 15.000 kr. til viðbótar ef tekjur eru undir ákveðnu viðmiði, það er gert í gegnum þjónustugátt Garðabæjar.

Allar upplýsingar og reglur um hvatapeninga má nálgast hérna.

Hvatapeningar eru hugsaðir til að hvetja börn og unglinga á aldrinum 5 til 18 ára til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi sem leitt er af þar til hæfum leiðbeinendum.