Fréttir og tilkynningar
Fréttir04.05.2023Útivistartími barna og unglinga frá 1. maí
Frá og með 1. maí mega 12 ára og yngri vera úti til klukkan 22 á kvöldin. Unglingar á aldrinum 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan 24. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum.
Fréttir04.05.2023Jazzþorpið í Garðabæ 19. – 21. maí
Garðatorg breytist í Jazzþorp dagana 19. – 21. maí en fjöldi tónleika verður á dagskrá bæði um miðjan dag og á kvöldin. Þá verða erindi um jazz og spurningakeppni á dagskrá og veitinga- og plötusala.
Fréttir02.05.2023Andlát: Ólafur G. Einarsson, heiðursborgari Garðabæjar
Ólafur hafði mótandi áhrif á uppbyggingu bæjarsamfélagsins í Garðabæ og var frumkvöðull á mörgum sviðum.
Fréttir28.04.2023Nemendur í Sjálandsskóla valdir Varðliðar umhverfisins 2023
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, útnefndi nemendur í Sjálandsskóla Varðliða umhverfisins. Nemendur á miðstigi og í 9. bekk Sjálandsskóla unnu á þemadögum verkefni um umhverfisvernd, endurvinnslu og endurnýtingu.
Fréttir28.04.2023Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
Nemendur í 7. bekk sem valdir voru úr Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla lásu svipmyndir úr skáldverkum og ljóð.
Fréttir25.04.2023Mikið úrval sumarnámskeiða 2023
Mikið úrval sumarnámskeiða fyrir börn verður í boði sumarið 2023 á vegum félaga í Garðabæ.
Fréttir25.04.2023Hreinsunarátak Garðabæjar er farið af stað!
Venju samkvæmt létu bæjarfulltrúar hendur standa fram úr ermum við Sundlaug Álftaness við Breiðumýri við upphaf átaksins 24. apríl.
Fréttir25.04.2023Nýr samstarfssamningur við Æskulýðsfélag Bessastaðasóknar
Samninginn undirrituðu þeir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Andrés Sigurðsson formaður sóknarnefndar Bessastaðasóknar í blíðskaparveðri á Álftanesi
Fréttir24.04.2023Garðabær tekur á móti allt að 180 flóttamönnum
Garðabær tekur á móti allt að 180 flóttamönnum samkvæmt samningi sem Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, undirrituðu í dag.
Fréttir24.04.2023Innleiðing á nýju flokkunarkerfi hefst 22. maí
Innleiðing á nýju flokkunarkerfi mun hefjast 22. maí 2023 í Garðabæ og taka um átta vikur. Með breyttu fyrirkomulagi verður sorp flokkað í plast, pappír, lífrænt og almennan úrgang.
Fréttir24.04.2023Veiðitímabilið er hafið í Vífilsstaðavatni
Veiðitímabilið í Vífilsstaðavatni er hafið og stendur yfir frá 1. apríl til 15. september.
Fréttir21.04.2023Rampur númer 450 í Garðabæ
Rakarastofa Garðabæjar fékk þann heiður að fá ramp númer 450, þeir Sævar Jóhann Sigursteinsson og Hlynur Guðmundsson, hársnyrtar, reka stofuna og buðu þeir Hákoni Atla Bjarkasyni íbúa á Garðatorgi að vígja rampinn formlega á föstudag.
Fréttir19.04.2023Fjör á Barnamenningarhátíð- troðfull dagskrá á laugardag!
750 börn njóta dagskrár dagana 17. – 21. apríl í Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar, Minjagarðinum á Hofsstöðum og Aftur til Hofsstaða og á Garðatorgi.
Fréttir18.04.2023Villa við rukkun fasteignagjalda
Við rukkun fasteignagjalda Garðabæjar komu í ljós villur þar sem ekki var hægt að rukka fasteignagjöld í gegnum kreditkort hjá nokkrum íbúum.
Fréttir14.04.2023Sumardagurinn fyrsti í Garðabæ
Sumardagurinn fyrsti verður haldinn með pompi og prakt í Garðabæ 20. apríl 2023.