Fréttir og tilkynningar
Fréttir10.03.2025Fjölmennur fræðslufundur um farsældarþjónustu
Fræðslufundur í tengslum við farsældarlögin sem haldinn var í Sveinatungu í seinustu viku var vel sóttur.
Fréttir07.03.2025Hvatningarsjóður fyrir unga hönnuði og listamenn
Menningar- og safnanefnd óskar eftir umsóknum frá einstaklingum og hópum á aldrinum 15-25 ára sem vilja auðga menningarlíf í Garðabæ. Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl.
Fréttir06.03.2025Dreymir um að komast í dansskóla í New York eða Chicago
Alexandra Vilborg Thompson úr félagsmiðstöðinni Urra í Urriðaholti bar sigur úr býtum í einstaklingskeppni 13 ára og eldri í danskeppni Samfés. Alexandra hefur brennandi áhuga á dansi og hefur æft íþróttina í um sjö ár. Hún æfir í Listdansskóla Hafnarfjarðar.
Fréttir06.03.2025Skipulag Arnarlands samþykkt
Skipulag Arnarlands var lagt fyrir bæjarstjórn Garðabæjar til lokaafgreiðslu í dag þar sem það var samþykkt. Uppbygging svæðisins mun hefjast í áföngum, með sérstakri áherslu á innviði og umferðarmál.
Fréttir06.03.2025Leiðbeiningar um skjánotkun barna
Mikil skjánotkun getur haft neikvæð áhrif á máltjáningu ungra barna. Félag talmeinafræðinga á Íslandi hefur sent frá sér ráð og leiðbeiningar um skjánotkun barna sem þau deila í tilefni Evrópudags talþjálfunar.
Fréttir05.03.2025Glitrandi konudagskaffi á Holtakoti
Krakkarnir á leikskólanum Holtakoti buðu mömmum og ömmum í skemmtilegt morgunkaffi í síðustu viku. Á boðstólnum voru heimabakaðar bollur og kaffi.
Fréttir04.03.2025Lestur er lykillinn – góð ráð um lestur fyrir börn
Í Garðabæ starfa tveir talmeinafræðingar á leikskólasviði, þær Kristín Theódóra og Sara Bjargardóttir. Þær gefa hér góð ráð í tilefni þess að Evrópudagur talþjálfunar er á næsta leiti.
Fréttir28.02.2025Litagleði fyrir Einstök börn
Ráðhús Garðabæjar er í litríkum búningi í tilefni þess að alþjóðadagur sjaldgæfra sjúkdóma er haldinn víða um heim í dag, 28. febrúar.
Fréttir28.02.2025Langir fimmtudagar í mars á Bókasafni Garðabæjar
Bókasafn Garðabæjar mun bjóða gestum og gangandi í heimsókn á fimmtudagskvöldum í mars þar sem boðið verður upp á fjölbreytt erindi.
Fréttir27.02.2025Gefandi og skemmtilegt að vinna við að fegra bæinn sinn
Það er gefandi að vinna undir berum himni við það að fegra nærumhverfi sitt segir Vignir Snær Norðdahl, yfirflokkstjóri umhverfishópa. Verkefnin eru alls konar sem gerir starfið lifandi og skemmtilegt.
Fréttir26.02.2025Er barnið þitt að byrja í grunnskóla? Svona getur þú kynnt þér skólana
Forráðafólki og væntanlegum nemendum gefst kostur á að koma í heimsókn í grunnskólana í Garðabæ frá 1. -10. mars.
Fréttir26.02.2025Tækifærin í Haukshúsi: Ertu með hugmynd að starfsemi?
Garðabær óskar eftir áhugasömum rekstraraðilum til samstarfs um leigu og rekstur Haukshúss á Álftanesi
Fréttir25.02.2025„Fólk brosir bara þegar það sér mig nálgast á bílnum“
Lítill og lipur rafmagnsbíll sem var tekinn í notkun í áhaldahúsi Garðabæjar fyrir áramót vekur lukku hjá bæjarbúum. Það er hann Hjalti Þórarinsson sem fer um bæinn á bílnum og tæmir ruslafötur.
Fréttir24.02.2025Innritun í grunnskóla í Garðabæ
Innritun nemenda í 1. bekk og 8. bekk fer fram dagana 1.- 10. mars nk. Innritað er á þjónustugátt Garðabæjar. Innritun lýkur 10. mars nk.
Fréttir24.02.2025Rými til leigu á 2. hæð Miðgarðs – Aðstaða fyrir heilsueflandi starfsemi
Garðabær auglýsir til leigu rými á 2. hæð íþróttamiðstöðvarinnar Miðgarðs, undir heilsueflandi starfsemi.