Álagning gjalda árið 2026
1. Útsvar
Álagningargjaldstig útsvars á tekjur manna á árinu 2026 er 14,71%.
2. Fasteignagjöld
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt eftirfarandi reglur við álagningu fasteignagjalda á árinu 2026:
| Íbúðarhúsnæði | Atvinnuhúsnæði / Aðrar Fasteignir | |
|---|---|---|
| Fasteignaskattur | 0,149% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarrétt. | 1,49% af fasteignamati (1,32% af fasteignamati fyrir sjúkrastofnanir, skóla, heimavistir, leikskóla, íþróttahús og bókasöfn.) |
| Lóðarleiga | 0,4% af fasteignamati lóðar | 1,0% af fasteignamati lóðar |
|
Sorphirðugjald
|
||
| Vatnsgjald |
0,071% af fasteignamati húsa og lóðarréttinda Vatnsgjald á Álftanesi skv. gjaldskrá OR/Veitna. |
0,071% af fasteignamati húsa og lóðarréttinda |
| Rotþróargjald |
Á Álftanesi skal rotþróargjald vera kr. 37.900. |
|
| Fráveitugjöld | Fráveitugjöld skulu vera 0,074% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005. |
|
| Taðþróargjald | Í hesthúsahverfi Andvara: kr. 456.900 á hvert hús fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2026 |
Elli- og örorkulífeyrisþegar fá afslátt af fasteignaskatti og holræsagjaldi skv. viðmiðunarfjárhæðum sem bæjarráð hefur samþykkt.
ATH tölur fyrir árið 2026 verða settar inn í janúar.
Bæjarráð Garðabæjar samþykkti eftirfarandi afslætti fyrir árið 2025:
Einstaklingar (elli- og örorkulífeyrisþegar):
Einstaklingar með tekjur árið 2023 allt að kr. 6.970.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 6.100 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 7.580.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).
Hjón og samskattaðir aðilar (elli- og örorkulífeyrisþegar):
Hjón með tekjur árið 2023 allt að kr. 8.870.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 14.500 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 10.330.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).
Ekki þarf að sækja um lækkunina.
Tillagan byggir á hækkun á ellilífeyris í janúar 2025 (4,3% hækkun).
Gjalddagar
Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2026 verða 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september og 15. október.
Í þeim tilvikum sem fasteignagjöld ársins eru 25.000 kr eða lægri er einn gjalddagi 15. apríl 2026.
ATHUGIÐ
Álagningarseðlar verða ekki sendir út á pappírsformi. Álagningarseðlar eru aðgengilegir inni á þjónustugátt Garðabæjar og á vefnum island.is.
Greiðsluseðlar eru ekki sendir út en kröfur birtast í heimabanka undir rafræn skjöl.
Upplýsingar og aðstoð
Þjónustuver Garðabæjar og innheimtudeild í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg veita nánari upplýsingar varðandi álagningu gjaldanna í síma 525 8500. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið gardabaer@gardabaer.is .