6. mar. 2026

Á flakki um Garðabæ

Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar verður á flakki um bæinn í mars þar sem hann býður upp á opna viðtalstíma fyrir íbúa.

Líkt og fyrri ár mun Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar bjóða upp á opna viðtalstíma á víð og dreif um bæinn í mars. Þá er gert er ráð fyrir að fólk geti fengið sér sæti með bæjarstjóra í stutta stund til að ræða málin.

„Bæjarbúar ættu margir hverjir að vera farnir að kannast við flakkið eins og við höfum kosið að kalla þetta fyrirkomulag. Hugmyndin er að ég komi við á ýmsum stöðum og gefi bæjarbúum tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum og hugmyndum á framfæri í léttu spjalli, og sömuleiðis að benda okkur á það sem bærinn gerir vel eða það sem betur mætti fara að þeirra mati. Ég hlakka mikið til að hitta á bæjarbúa,“ segir Almar.

Svona lítur flakkið 2026 út:

Mánudagurinn 9. mars
Jónshús, 14:00 – 15:30

Miðvikudagurinn 11. mars
Ásgarðslaug, 07:30 – 09:30

Fimmtudagurinn 12. mars
Miðgarður, 08:30 – 10:30
Ungmennahús Garðabæjar, 19:00 – 20:30

Þriðjudagurinn 17. mars
Urriðaholtsskóli, 15:00 – 17:00

Miðvikudagurinn 18. mars
Lambamýri, 12:00 – 13:30
Ásgarðslaug, 15:30 – 17:30

Mánudagurinn 23. mars
Sundlaug Álftaness, 7:30 – 09:30

Öll velkomin og heitt á könnunni.