12. apr. 2019

Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar

Árlegt hreinsunarátak í Garðabæ verður dagana 23. apríl – 7. maí nk. Nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar eru hvattir til að taka þátt í hreinsunarátakinu.

  • Hreinsunarátak Garðabæjar
    Hreinsunarátak Garðabæjar

Árlegt hreinsunarátak í Garðabæ verður dagana 23. apríl – 7. maí nk. Þá geta hópar tekið sig saman um að hreinsa svæði í bæjarlandinu og fengið fjárstyrk að launum t.d. til að verðlauna sig með grillveislu að loknu góðu verki. Nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar eru hvattir til að taka þátt í hreinsunarátakinu með það að markmiði að Garðabær verði einn snyrtilegasti bær landsins.

Félög/hópar geta tekið þátt

Þau félög/hópar sem vilja taka þátt, með því að taka að sér hreinsunarverk í nærumhverfi sínu geta haft samband við verkefnastjóra í garðyrkjudeild í s. 820 8574 eða með því að senda t-póst í netfangið lindajo@gardabaer.is.
Íbúar eru jafnframt hvattir til að sýna gott fordæmi með því að taka nærumhverfi sitt í fóstur og hlúa að því. Starfsmenn bæjarins munu hirða upp alla poka og annað eftir ruslatínslu bæjarbúa, hópa eða einstaklinga. Þátttakendur geta nálgast poka fyrir ruslatínsluna í áhaldahúsi Garðabæjar við Lyngás 18. Plast skal flokkað sérstaklega frá öðru rusli og sett í glæran plastpoka sem einnig má fá hjá áhaldahúsinu. 

Hreinsun gatna næstu daga

Næstu kvöld verður Garðatorg sópað og 15. apríl verður byrjað að sópa aðalgötur bæjarins.  Íbúar sem og aðrir eru beðnir um að sýna tillitsemi á meðan sópun stendur yfir. 

Vorhreinsun og fróðleikur um gróður á lóðum

Hin árlega vorhreinsun lóða verður haldin dagana 13.-24. maí og upplýsingar um vorhreinsunina og hreinsunarátakið má finna á vef Garðabæjar, gardabaer.is. Jafnframt fá bæjarbúar sendan bækling heim til sín á næstu dögum með upplýsingum um vorhreinsunina. 

Hér á vef Garðabæjar er jafnframt hægt að nálgast mikinn fróðleik um gróður á lóðum , s.s. um umhirðu trjágróðurs og leiðbeiningar um umhirðu garða.