Búið að leggja gönguskíðabraut á golfvelli GKG
Gönguskíðabraut á golfvelli GKG er komin í gagnið.
Búið er að leggja gönguskíðabraut á golfvelli GKG. Raunar er þetta í annað sinn á síðastliðnum þremur dögum sem brautin er lögð en það snjóaði yfir hana aðfaranótt þriðjudags og þurfti að endurgera hana.
Vallarstarfsmenn hjá GKG hafa haft í nógu að snúast undanfarið við snjómokstur á vellinum og vinnu við að koma gönguskíðabrautinni í gagnið. Þeir nutu aðstoðar frá Hjálparsveit Skáta í Kópavogi við gerð brautarinnar.
Það var greinilega nokkur eftirvænting eftir gönguskíðabrautinni og var fólk þegar byrjað að nota hana í gærkvöldi þegar verið var að leggja lokahönd á vinnu við hana.