11. feb. 2022 Almannavarnir Covid–19 Stjórnsýsla

Covid-19: Afnám sóttkvíar og breytingar á samkomutakmörkunum

Á miðnætti aðfararnótt 12. febrúar tekur gildi ný reglugerð um takmörkun á samkomum sem gildir til og með 25. febrúar. Jafnframt fellur brott sérstök reglugerð um takmörkun á skólastarfi.

Reglugerð sem felur í sér afnám sóttkvíar vegna smita innanlands tekur gildi á miðnætti í kvöld 11. febrúar.  Reglur um einangrun verða óbreyttar. Reglur um þá sem koma um landamæri Íslands breytast ekki.

Á miðnætti aðfararnótt 12. febrúar tekur gildi ný reglugerð um takmörkun á samkomum sem gildir til og með 25. febrúar. Jafnframt fellur brott sérstök reglugerð um takmörkun á skólastarfi.
Sjá nánar í frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins.

Helstu breytingar á samkomutakmörkunum eru eftirfarandi:

Almennar fjöldatakmarkanir: 

  • Fara úr 50 í 200 manns innandyra. Fjöldatakmarkanir utandyra falla brott.
  • Verslanir: Fjöldatakmarkanir í verslunum falla brott.
  • Fjölmennir viðburðir: Heimilt verður að halda 1.000 manna viðburði að því tilskildu að allir sitji í sæti og beri grímu. Heimilt er að halda hlé á viðburðum og selja veitingar án takmarkana.
  • Grímunotkun: Aðeins verður skylt að bera grímu ef ekki er hægt að viðhafa 1 metra reglu.
  • Hreyfing: Sund- og líkamsræktarstöðvum sem og skíðasvæðum er heimilt að taka á móti gestum með fullum afköstum.
  • Íþróttakeppnir og -æfingar: Keppnir og æfingar heimilar með 200 manns í hólfi.
  • Skólar: Reglugerð um takmörkun á skólastarfi fellur brott. Þar með gilda almennar reglur um samkomutakmarkanir í skólum, þó með undanteknum til rýmkunar.
  • Skólaskemmtanir: Heimilt er að halda skólaskemmtanir í grunn- og framhaldsskólum án nokkurra takmarkana.
  • Staðir með vínveitingaleyfi: Opnunartími lengdur um eina klukkustund, þ.e. heimilt að taka á móti gestum til miðnættis en allir þurfa að hafa yfirgefið staðinn kl. 01.00.