25. jan. 2022 Almannavarnir Covid–19 Stjórnsýsla

COVID-19: Slakað á reglum um sóttkví

Breytingar á reglum um sóttkví taka gildi á miðnætti þriðjudaginn 25. janúar.

  • Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog
    Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog

Einstaklingum sem eru útsettir fyrir COVID-19 smiti utan heimilis eða dvalarstaðar síns verður ekki lengur skylt að fara í sóttkví en þurfa þess í stað að viðhafa smitgát. Sóttkví verður áfram beitt gagnvart þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti innan heimilis eða dvalarstaðar en þríbólusettir sem útsettir eru á heimili geta verið í smitgát sem lýkur með sýnatöku. Börn á leik- og grunnskólaaldri verða enn fremur undanþegin smitgát. Breytingarnar taka gildi á miðnætti í kvöld þriðjudaginn 25. janúar.

Breytingar á reglum um sóttkví eru gerðar í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Í minnisblaði hans til heilbrigðisráðherra kemur fram að ómíkron-afbrigði kórónaveirunnar sé uppistaðan í þeim mikla fjölda smita sem nú greinast eða í rúmlega 90% tilvika, en delta-afbrigðið í tæplega 10%. Þannig sé faraldurinn nú um margt frábrugðinn því sem verið hefur en ómíkron-afbrigðið er mun meira smitandi en delta-afbrigðið, veldur sjaldnar alvarlegum veikindum og sleppur frekar undan vernd bóluefna og fyrri smita.

Þá kemur fram í minnisblaði sóttvarnalæknis að núverandi reglur um sóttkví og einangrun hafi valdið miklum fjarvistum í skólum og á vinnumarkaði með tilheyrandi truflunum. Mörg börn hafi endurtekið þurft að vera í sóttkví og hafi séfræðingar í velferð barna bent á að slíkt geti haft neikvæðar afleiðingar. Því sé lagt til að börn á leik- og grunnskólaaldri þurfi ekki að fara í smitgát eða sóttkví nema þau hafi dvalið eða dvel með einstakling í einangrun.

Hinn 24. janúar síðastliðinn voru rúmlega 11 þúsund manns í einangrun, þar af rúmlega 4 þúsund börn. Jafnframt voru tæplega 14 þúsund manns í sóttkví og þar af um 6.900 börn en stór hluti fullorðinna sem skráður er í sóttkví er þríbólusettur og hefur því getað mætt til vinnu.

Á vef heilbrigðisráðuneytisins er hægt að sjá frétt og minnisblað sóttvarnalæknis.

Með þeirri breytingu sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið verður sóttkví og smitgát með eftirfarandi hætti:


Sóttkví verður fyrir þá sem eru útsettir á heimili.

  • Skilyrði sóttkvíar verða óbreytt, þ.e. aðskilnaður frá öðrum í fimm daga og PCR-próf til að losna.
  • Ef ekki er viðhafður fullur aðskilnaður frá smituðum á heimili lýkur sóttkví með PCR-prófi degi eftir að sá smitaði útskrifast, eins og verið hefur.
  • Þríbólusettir (smit telur sem ein bólusetning) á heimili fara þó í smitgát í stað sóttkvíar, sbr. að neðan, sem lýkur með PCR-prófi á fimmta degi.


Smitgát verður fyrir þá sem eru útsettir utan heimilis.

  • Í smitgát skal viðkomandi bera grímu í margmenni og þegar ekki verður hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti sem inni. Forðast skal mannmarga staði og sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga.
  • Smitgát þarf að viðhafa í fimm daga og ekki þarf sýnatöku til að losna, sbr. þó þríbólusetta sem eru útsettir á heimili.
  • Börn á leik- og grunnskólaaldri eru undanþegin smitgát í þessum tilfellum en þurfa að vera í sóttkví ef smit er á heimili.