8. feb. 2026

Endurnýjaður samstarfssamningur Garðabæjar og FEBG undirritaður

Endurnýjaður samningur Garðabæjar og Félags eldri borgara í Garðabæ (FEBG) um áframhaldandi stuðning bæjarins við hreyfingu og heilsueflingu eldra fólks í Garðabæ hefur verið undirritaður.

Endurnýjaður samningur Garðabæjar og Félags eldri borgara í Garðabæ (FEBG) um áframhaldandi stuðning bæjarins við hreyfingu og heilsueflingu eldra fólks í Garðabæ hefur verið undirritaður. Anna Möller, formaður FEBG, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri kynntu tilgang og markmið samstarfsins í Jónshúsi á dögunum.

Meginmarkmið samningsins er að bjóða eldra fólki áfram upp á fjölbreytta valkosti í hreyfingu og heilsueflingu undir leiðsögn vel menntaðra og hæfra leiðbeinanda. FEBG og Garðabær hafa unnið sameiginlega að því að efla það gróskumikla félagsstarf sem í boði er og ná til breiðs hóps. Áfram verður unnið í þá átt og gildir samningurinn út árið 2027.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir samninginn vera framhald af farsælu samstarfi FEBG og bæjarins á þessu sviði. „Við leggjum áherslu á að bjóða eldra fólkinu okkar upp á fjölbreytileika og gæði þegar kemur að hreyfingu og heilsueflingu. Við vitum að það er afar mikilvægur liður í því að stuðla að auknum lífsgæðum þessa hóps,“ segir Almar.