Fimmtugir komu saman og fögnuðu
Hópur Garðbæinga sem á það sameiginlegt með Garðabæ að fagna 50 ára afmæli á árinu 2026 kom saman í Sveinatungu á Garðatorgi og fagnaði tímamótunum.
Í tilefni 50 ára afmælis bæjarins bauð Garðabær öllum íbúum sem fæddir eru árið 1976, sama ár og bærinn fékk kaupstaðarréttindi, til skemmtilegrar móttöku í Sveinatungu. Hópurinn átti notalega stund saman og gafst viðstöddum gott tækifæri til að spjalla, njóta góðra veitinga og jafnvel rifja upp gamla tíma.
„Þetta lukkaðist vel og það var gaman að fá að fagna með þessum hópi sem er á merkum tímamótum í sínu lífi. Það var sérstaklega gaman að sjá að þarna komu saman bæði rótgrónir vinahópar sem ólust upp í bænum og þekkja hann út og inn en líka aðfluttir Garðbæingar sem voru mættir til að styrkja tengslanetið og kynnast heimabæ sínum betur,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar.
Í tilefni þess að Garðabær fagnar 50 ára afmæli á árinu er boðið upp á fjölbreytta afmælisdagskrá sem spannar allt árið. Móttaka þeirra bæjarbúa sem fæddir eru 1976 var einn liður í dagskránni.


Garðbæingarnir Máni og Áslaug tóku til máls og rifjuðu upp gamlar og góðar stundir.
















Tónlist var í höndum Kjartans Valdimarssonar.

Snjólaug Lúðvíksdóttir flutti frábært uppistand.
