2. nóv. 2023

Fjárhagsáætlun 2024 lögð fram

Áhersla er lögð á aðgerðir til að styrkja grunnrekstur bæjarins annars vegar með hagræðingu í rekstri og hins vegar með hærra álagningarhlutfalli útsvars.

Frumvarp að fjárhagsáætlun Garðabæjar var lagt fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag. Garðabær stendur vel fjárhagslega. Skuldaviðmið er lágt og vel undir opinberum viðmiðunarmörkum, en hefur hækkað samhliða vexti bæjarins undanfarin ár. Með hækkandi vöxtum og verðbólgu hafa fjármagnsgjöld einnig hækkað. Í fjárhagsáætlun er meðal annars brugðist við krefjandi efnahagsaðstæðum, hárri verðbólgu, háum vöxtum og kjarasamningsbundnum launahækkunum.

Áhersla er lögð á aðgerðir til að styrkja grunnrekstur bæjarins (í A sjóði) annars vegar með hagræðingu í rekstri og hins vegar með hærra álagningarhlutfalli útsvars.

„Garðabær gengur nú í gegnum miklar breytingar á sama tíma og óvissa er á lofti í efnahagsmálum. Það þarf að takast á við þessa stöðu af ábyrgð og það gerum við með framlagningu þessarar fjárhagsáætlunar,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar.

Horft til framtíðar

„Það er einfaldlega svo að við viljum búa í haginn fyrir framtíðina og standa vörð um trausta fjárhagsstöðu bæjarins. Það er mikilvægt að þó Garðabær standi vel þá er það skylda okkar að laga reksturinn að breyttum forsendum og þeim efnahagsaðstæðum sem blasa við. Það höfum við áður gert með góðum árangri, og staðið þannig vörð um hátt þjónustustig og lífsgæði fyrir íbúa í bænum.“

Frumvarp til fyrri umræðu fjárhagsáætlunar gerir ráð fyrir að tekjur bæjarins verði 28.584 ma.kr. á árinu 2024. Rekstrarniðurstaða A sjóðs verður neikvæð um 83 m.kr. en samanlögð niðurstaða A og B sjóðs jákvæð um 579 m.kr. Veltufé frá rekstri er áætlað 2,3 ma.kr. eða 8,2% af tekjum. Skuldir munu aukast um 2,8 ma.kr. Skuldaviðmið verður 109% skv. áætluninni.

Áhersla á hagræðingu og dregið úr framkvæmdum

Í áætluninni er lögð áhersla á aðlögun á rekstri A sjóðs með ýmsum aðgerðum. Gert er ráð fyrir hagræðingaraðgerðum s.s. með hagkvæmari innkaupum og með aukinni áherslu á stafræna umbreytingu. Þá verður gerð almenn hagræðingarkrafa á allan rekstur. Áætlunin gerir ráð fyrir að útsvarshlutfall hækki í 14,48%, sem verður eftir sem áður (lang) lægsta útsvarshlutfall á meðal stærri sveitarfélaga. Fasteignagjöld á íbúa verða þó ekki hækkuð umfram verðlag. Áætlað er að aðgerðir til að bæta rekstur A sjóðs muni skila ríflega einum milljarði króna í rekstrarbata.

Í ljósi erfiðari efnahagsaðstæðna verður dregið úr framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins en þó þannig að mikilvægar nýframkvæmdir og endurbætur á skólahúsnæði munu njóta forgangs eins og á yfirstandandi ári.

Hraður vöxtur

„Garðabær hefur vaxið hratt á undanförnum árum og við sjáum að samfélagið okkar er að yngjast ef svo má að orði komast. Bærinn er barnmargur í samanburði við flest önnur sveitarfélög af svipaðri stærð og því fylgir aukin þjónusta sem við höfum kappkostað að sinna vel. Barnafjöldinn gerir okkur að fjölbreyttara og skemmtilega samfélagi. Við höfum lagt áherslu á að umhverfið sé gott og barnvænt, til dæmis með fjölda leikvalla, sterku skólasamfélagi á öllum stigum og framúrskarandi íþróttaumgjörð,“ segir Almar.

 

Líkt og á við um önnur sveitarfélög vega velferðarmál þungt í fjárhagsáætlun Garðabæjar. Þá þarf að ljúka samkomulagi um fjármögnun verkefna sem ríki og sveitarfélög semja um sín á milli. Þá eru framkvæmdir tengdar uppbyggingu og endurnýjun hverfa talsvert fjárfrekar.

„Við lögðum mikla áherslu á endurbætur á húsnæði á síðasta ári sem hefur skilað sér í umtalsvert betra skólahúsnæði í eldri skólum bæjarins. Samhliða því erum við að reisa næstu áfanga Urriðaholtsskóla og nýjan leikskóla í Urriðaholti.“ Slík innviðauppbygging tilheyrir vaxandi samfélagi. Garðabær mun auglýsa byggingarrétt í Hnoðraholti til sölu næstu daga og svarar þannig enn á ný ákalli um aukið framboð á húsnæði og ekki hvað síst sérbýli.

„Við ætlum að vera áfram traust og blómlegt sveitarfélag sem veitir íbúum framúrskarandi þjónustu. Því grípum við líka inn í á réttu augnabliki. Rekstur bæjarins er góður, en við þurfum að horfast í augu við það að við erum í miklum vexti, sem krefst mikils af bæjarsjóði. Við vitum líka að þetta eru tímabundnar aðstæður en við þeim þarf samt að bregðast. Með framlagðri fjárhagsáætlun erum við að sýna ábyrgð í rekstri, sláum aðeins af hraðanum í sókninni en erum samt enn að sækja fram með grandvörum og traustum hætti.“

 

Hér má kynna sér gögnin sem lögð voru fram á bæjarstjórnarfundi: 



Upptaka frá bæjarstjórnarfundi 2. nóvember 2023: 

Hér má horfa á fundinn.