7. júl. 2022

Fjölbreyttar smiðjur fyrir börn í sumar

Í sumar eru fjölbreyttar smiðjur í boði fyrir börn á Bókasafni Garðabæjar alla föstudaga á milli kl. 10 og 12.

  • Fimni á fimmtudögum - skapandi smiðja í bókasafninu
    Fimni á fimmtudögum - skapandi smiðja á Bókasafni Garðabæjar

Í sumar eru fjölbreyttar smiðjur í boði fyrir börn á Bókasafni Garðabæjar alla föstudaga á milli kl. 10 og 12.

Fyrsta smiðjan var 24. júní en síðasta sumarsmiðjan verður þann 12. ágúst nk.
Bókasafnið opnar kl. 9 og það er alltaf velkomið að koma snemma og hanga, lesa eða spjalla.
Lestrarhestur vikunnar í sumarlestrinum er síðan dreginn út kl. 12:00 alla föstudaga.

Dagskrá sumarsins:

  • 8. júlí: Þitt eigið fríríki

Sköpum okkar eigið ríki, búum til skjaldamerki, fána og tilheyrandi fyrir ríkið okkar.

  • 15. júlí: Sjávardýr í glugga og á pappír

Skreytum gluggana í barnadeildinni með ýmsum sjávardýrum í takt við þema sumarlestursins. Einnig verður í boði að föndra fiska úr pappír.

  • 22. júlí: Spilaklúbbur

Spilum borðspil og hlustum á tónlist.

  • 29. júlí: Harry Potter dagurinn

Dagur galdrastráksins knáa verður haldinn hátíðlega eins og venjulega hjá okkur og við munum meðal annars föndra okkar eigin töfrasprota.

  • 5. ágúst: Origami bókamerki

Föndrum bókamerki í formi dýra og furðuvera

  •  12. ágúst: Leikir og dans úti á torgi

Sumarstarfsmenn okkar bjóða í veislu úti á torgi. Gömlu leikirnir, snúsnú, krítar og teygjutvist, húllahringir og endalaust af skemmtilegri tónlist.

Smiðjurnar eru ókeypis og opnar öllum börnum. Verið innilega velkominn á Bókasafn Garðabæjar í sumar.