Fjölmenni við opnun nýrrar félagsmiðstöðvar við Lambamýri
Það var skemmtileg stund þegar ný fjölnota félagsaðstaða við Lambamýri 1 á Álftanesi var tekin formlega í notkun. Aðstaðan mun m.a. hýsa félagsstarf eldri fólks á Álftanesi og mun Félag eldri borgara á Álftanesi (FEBÁ) hafa aðsetur í húsnæðinu.
Það var skemmtileg stund þegar ný fjölnota félagsaðstaða við Lambamýri 1 á Álftanesi var tekin formlega í notkun. Aðstaðan mun m.a. hýsa félagsstarf eldri fólks á Álftanesi og mun Félag eldri borgara á Álftanesi (FEBÁ) hafa aðsetur í húsnæðinu.

Arnór Valdimarsson, formaður FEBÁ, og Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, skrifa hér undir nýjan samstarfssamning.
Fjölmenni var við opnunina og greinilegt að margir íbúar taka þessari nýju aðstöðu fagnandi. Garðálfarnir, kór eldri borgara á Álftanesi, sungu nokkur vel valin lög undir stjórn Ástvalds Traustasonar. Endurnýjaður samstarfssamningur Garðabæjar og FEBÁ var undirritaður við tilefnið.

„Það var ánægjulegt að sjá hversu margir lögðu leið sína á opnunina. Það er svo mikilvægt að geta boðið upp á vettvang fyrir eldra fólk til að koma saman og stunda gott og gefandi félagsstarf. Þetta nýja rými hefur upp á margt að bjóða, það er svo opið og bjart og við hvetjum áhugasama til að kíkja í heimsókn,“ segir Sólveig Valgeirsdóttir sem er forstöðumaður félagsmiðstöðva eldra fólks hjá Garðabæ.

Leitað er að nafni á félagsmiðstöðina og á opnuninni var þar til gerður hugmyndakassi settur fram þar sem viðstaddir gátu skilað inn hugmyndum um nafn á þessa nýju félagsmiðstöð. Hægt er að koma með tillögur að nafni út 5. febrúar nk. Það kemur því í ljós von bráðar hvað nýja aðstaðan mun heita.
Fyrst um sinn verður opið frá mánudegi til fimmtudags, frá klukkan 10:15 til 15:15.


Allý og Ásta eru starfsmenn í Lambamýri.



Boðið var upp á nýbakaðar vöfflur og heitt kaffi.
