19. des. 2022

Flataskóli hlaut viðurkenningu frá UNICEF sem réttindaskóli

Í síðustu viku tók réttindaráð Flataskóla við viðurkenningu frá Unicef um að eftir úttekt þá hefur skólinn rétt á að kalla sig áfram réttindaskóla Unicef. Það var vel við hæfi að hafa athöfnina í lok þemadaga sem voru með yfirskriftinni „við erum öll jöfn“ sem er bein vísun í 2. grein barnasáttmálans.

Seinni þemadaginn var öllum nemendum skólans blandað tilviljanakennt í 12-13 barna hópa sem unnu allir það sama undir leiðsögn kennara. Farið var m.a. í ratleik um barnasáttmálann úti á skólalóð, farið var í nafnaleik, teiknaðar voru sjálfsmyndir og unnið var með það hvað við erum öll eins þó við séum ólík.

Á viðurkenningarathöfninni kynntu fulltrúar nemenda vinnuna sem fram fór fyrri þemadaginn. Nemendur stóðu sig mjög vel við að lýsa því hvað vinabekkir höfðu unnið og hvernig það tengdist annarri grein barnasáttmálans.