17. mar. 2023

Fræðslu- og upplýsingafundur vegna máva

Fræðslu- og upplýsingafundur vegna máva verður haldinn fyrir íbúa Garðabæjar miðvikudaginn 12. apríl kl. 17 í Sjálandsskóla.

Fræðslu- og upplýsingafundur vegna máva verður haldinn fyrir íbúa Garðabæjar miðvikudaginn 12. apríl kl. 17 í Sjálandsskóla.

Óánægja hefur skapast meðal hluta íbúa í ákveðnum hverfum vegna ágangs sílamáva sem að mati íbúa hefur aukist undanfarin ár og valdið óþægindum. Samkvæmt íbúum er töluvert mávavarp t.d. í Sjálandshverfi og öðrum hverfum í bænum. Mávar hafa möguleika á að leita sér skjóls á húsþökum sem víða eru flöt og sum hver með stórum steinum sem gera heppilegan varpstað.

Fundarstjóri verður Stella Stefánsdóttir, formaður umhverfisnefndar Garðabæjar.

Dagskrá:

1. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri opnar fundinn

2. Fræðsluerindi heldur Arnór Þórir Sigfússon, dýravistfræðingur frá Verkís.

3. Opið fyrir spurningar: Magni Konráðsson meindýraeyðir og Arnór Þórir Sigfússon, dýravistfræðingur sitja fyrir svörum.