3. mar. 2026

Fyrirlestur Péturs Ármannssonar um tímamótahús í Garðabæ

Hérna má horfa á áhugaverðan fyrirlestur Péturs Ármannssonar sem hann hélt í Hönnunarsafni Íslands 15. febrúar. Í fyrirlestrinum fjallaði hann um valin hús í Garðabæ frá ólíkum tímaskeiðum sem mörg sættu tíðindum í þróun byggingarlistar hér á landi

Garðabær á sér mun ríkulegri byggingararf en ætla mætti í fljótu bragði. Í þessu erindi sínu fjallaði Pétur Ármannsson arkitekt um valin hús í Garðabæ frá ólíkum tímaskeiðum sem mörg sættu tíðindum í þróun byggingarlistar hér á landi.

Í fyrirlestrinum fór hann yfir sögu og sérstöðu húsanna og skoðaði þau í samhengi við alþjóðlega strauma í byggingarlist, sögu Garðabæjar og þróun byggðar á höfuðborgarsvæðinu.

Fyrirlesturinn var hluti af 50 ára afmælisveislu Garðabæjar

https://vimeo.com/1168907610?fl=pl