14. maí 2024

Garðabær og Gróska endurnýja samstarfssamning

Jónsmessuhátíðar er beðið með mikilli eftirvæntingu

Garðabær og Gróska í Garðabæ hafa endurnýjað samstarfssamning sinn til ársins 2026, en Gróska eru samtök myndlistamanna og áhugamanna um myndlist í Garðabæ. Þeir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri og Birgir Rafn Friðriksson, formaður Grósku undirrituðu samninginn í Gróskusalnum við dillandi tónlistarnið úr Jazzþorpinu í Garðabæ og fengu sér svo rjómapönnukökur til að halda upp á undirritunina.

IMG_6246

Með samningnum er Grósku falið að halda sína rómuðu Jónsmessugleði í Garðabæ, halda sýningar í Gróskusalnum og á Bókasafni Garðabæjar og fá samtökin til þess rekstrarstyrk til ársins 2026. Þá hafa þau einnig umsjón og aðgang að Gróskusalnum sem Garðabær rekur.

Nú er frábærri sumarsýningu Grósku, Vorið er komið og grundirnar gróa, nýlokið og Jónsmessuhátíðarinnar er beðið með mikilli eftirvæntingu í júní, en undirbúningur hennar er þegar hafin.

Sýning Álfheiðar Ólafsdóttur, Traustur vinur, hófst 10. maí á Bókasafni Garðabæjar. Fram undan eru fjölmargar sýningar á vegum Grósku.