Góður árangur í innritun leikskóla: 235 börn fengu pláss
Yngstu börnin átta mánaða þegar þeim er boðin leikskólavist
Innritun í leikskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2025–2026 fór fram dagana 2.–3. apríl og gekk afar vel. Alls voru 235 börn innrituð og 200 flutningsbeiðnir afgreiddar. Öllum börnum fæddum í júlí 2024 eða fyrr var boðin leikskólavist.
„Við leggjum ríka áherslu á að þjónustan okkar sé sveigjanleg og í takt við þarfir fjölskyldna í bænum,“ segir Almar Guðmundsson bæjarstjóri.
Hægt var að verða við fyrsta vali í flestum tilvikum og bjóða systkinum leikskólavist í sama skóla. Börnin hefja flest aðlögun í upphafi skólaársins í ágúst.
Úrvinnsla úr boðnum plássum stendur enn yfir þar sem nokkrir foreldrar hafa ekki enn staðfest að þeir þiggi leikskólaplássið eða vilji flutning á milli skóla. Þeir eru hvattir til að ganga frá ákvörðun sinni sem allra fyrst. Að meðaltali bætast 20-25 börn við á biðlistann í hverjum mánuði og leikskólar Garðabæjar eru nú að mestu fullsettir, en laus pláss eru enn á ungbarnaleikskólanum Mánahvoli þar sem 55 börnum verður boðin dvöl til viðbótar.
Einnig stendur til að nýta rými í Litlakoti við Krakkakot á Álftanesi og fjölga plássum í 5 ára deild Sjálandsskóla í haust.
Næsta innritunarlota verður í maí 2025 og þá verður innritað í laus pláss í Mánahvoli og einnig verður staðan skýrari í öðrum leikskólum. Reiknað er með að börn fædd í ágúst og september 2024 fái boð um dvöl við þá úthlutun. Vert er að minna á að innritun á sér stað allan ársins hring í leikskóla Garðabæjar, eftir því sem pláss losna.