10. feb. 2022

Íbúum Garðabæjar fjölgar mikið

Íbúum Garðabæjar fjölgaði um 760, eða 4,3 % á tímabilinu frá 1. janúar 2021 til 1. janúar 2022 en það er mesta fjölgun meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. 

  • Íbúum í Garðabæ fjölgar um 4,3%.
    Íbúum í Garðabæ fjölgar um 4,3%.

Íbúum Garðabæjar fjölgaði um 760, eða 4,3 % á tímabilinu frá 1. janúar 2021 til 1. janúar 2022 en það er mesta fjölgun meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.420 (1,8%)  á sama tímabili og íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði um 416 (2,2%) samkvæmt frétt Þjóðskrá Íslands.
Íbúafjöldinn í Garðabæ 1. janúar sl. var 18 452.

Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Helgafellssveitar fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tólf mánuði eða um 19,7% en íbúum þar fjölgaði um 13 íbúa. Næst kemur Tjörneshreppur með 8,9% fjölgun en íbúum í sveitarfélaginu fjölgaði um 5.

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi um 15,1% og Skorradalshreppi um 9,1%. Þá fækkaði íbúum í 18 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.

Fjölgun í öllum landshlutum

Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum. Hlutfallslega mest var fjölgunin á Suðurlandi eða um 3,3% og á Suðurnesjum um 3,2%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði íbúum um 1,9%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. janúar 2021 og 2022.