25. júl. 2023

Innleiðing á nýju sorphirðukerfi: Tæming í vikunni

Í þessari viku verða allar plast og pappatunnar tæmdar, í öllu bæjarfélaginu.

 

  • Miðbær Garðabæjar
    Miðbær Garðabæjar

Innleiðing á nýju flokkunarkerfi fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu er enn í gangi en Garðabær hefur lokið við dreifingu á nýjum tunnum. Nú er fjórum úrgangsflokkum safnað við hvert heimili.

Nýja kerfið byggir á lögum sem tóku gildi fyrr á þessu ári og fela í sér betri meðhöndlun á úrgangi en hætta þarf að urða lífrænan úrgang.

Innleiðingin hefur gengið ágætlega í Garðabæ og fá íbúar þakkir fyrir að sýna þeim hnökrum sem upp hafa komið skilning.

  • Í þessari viku verða allar plast og pappatunnar tæmdar, í öllu bæjarfélaginu.

Einnig er til skoðunar að auka tíðni á losun á plasti og pappír í Garðabæ, nánari upplýsingar um það verða veittar síðar. Vakin er athygli á að hægt er að fara á grenndarstöðvar í bænum  (sjá mynd hér fyrir neðan) og móttökustöðvar Sorpu á höfuðborgarsvæðinu. 

Grennd


Garðabær mun einnig bjóða upp á örnámskeið í flokkun samkvæmt nýja kerfinu á næstu vikum.