Innritun í grunnskóla í Garðabæ
Innritun nemenda í 1. bekk og 8. bekk fer fram dagana 1.- 10. mars nk. Innritað er á þjónustugátt Garðabæjar. Innritun lýkur 10. mars nk.
Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2019) og 8. bekk (f. 2012) fer fram dagana 1.- 10. mars nk. Innritað er á þjónustugátt Garðabæjar. Athugið að aðeins nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla. Innritun lýkur 10. mars nk.
Sömu daga fer fram skráning vegna nemenda í 2.-9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla. Áríðandi er að forráðafólk tilkynni óskir um flutning milli skóla fyrir 10. mars nk. Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á frístundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla á næsta ári fer einnig fram þessa sömu daga. Hún er einnig á þjónustugátt Garðabæjar. Sama gildir fyrir sérstakt frístundaúrræði Garðahraun sem er fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á frístundaheimilum.
Ef umsóknir fyrir næsta skólaár berast fyrir 15. júní fær barnið pláss á umbeðnu frístundaheimili. Umsóknir sem berast eftir þann tíma eru afgreiddar með tilliti til starfsmannahalds hverju sinni.
Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og sjálfstætt reknum grunnskólum skólaárið 2025-2026 er til 1. apríl, sótt er um skólavist utan lögheimilis á þjónustugátt Garðabæjar. Vakin er athygli á að umsókn fyrir nemanda sem stundar nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf að endurnýja fyrir hvert skólaár.
NÁNARI UPPLÝSINGAR MÁ NÁLGAST Í SKÓLUNUM:
Álftanesskóli, s. 540 4700, alftanesskoli.is
Flataskóli, s. 513 3500, flataskoli.is
Garðaskóli, s. 590 2500, gardaskoli.is
Hofsstaðaskóli, s. 590 8100, hofsstadaskoli.is
Sjálandsskóli, s. 590 3100, sjalandsskoli.is
Urriðaholtsskóli, s. 591 9500, urridaholtsskoli.is
Barnaskóli Hjallastefnunnar, s. 555 7710, bskgbr.hjalli.is
Alþjóðaskólinn sími 594 3100, internationalschool.is