Krókur opinn á sunnudögum í sumar
Eins og undanfarin sumur er opið hús í burstabænum Króki alla sunnudaga í sumar frá kl. 12-17. Enn gefst því tækifæri til að heimsækja Krók næstu sunnudaga í ágúst.
-
Burstabærinn Krókur á Garðaholti er opinn alla sunnudaga í sumar kl.11:30-15:30. Aðgangur er ókeypis.
Eins og undanfarin sumur er opið hús í burstabænum Króki alla sunnudaga í sumar frá kl. 12-17. Enn gefst því tækifæri til að heimsækja Krók næstu sunnudaga í ágúst. Aðgangur er ókeypis.
Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær í eigu Garðabæjar sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þorbjörgu Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985.
Tilvalið er að fara í göngutúr um Garðaholtið og koma við í Króki í leiðinni einnig er hægt að leggja bílum við samkomuhúsið á Garðaholti (Krókur er staðsettur ská á móti samkomuhúsinu) við gatnamót Garðavegar og Garðaholtsvegar.
Sjá nánari upplýsingar um Krók hér.
Samstarf við sumarmessur í Garðakirkju
Í sumar er bærinn Krókur í samstarfi við Sumarmessur í Garðakirkju og alla sunnudaga í sumar verður messa í Garðakirkju kl. 11. Á meðan á sumarmessum stendur verður sunnudagaskóli fyrir börn í Króki og hefst sunnudagaskólinn kl. 11 alla sunnudaga. Að lokinni sumarmessu verður boðið upp á veitingar í hlöðunni við Krók og jafnvel óvæntar uppákomur. Krókur er í göngufæri frá Garðakirkju.
Sumarmessur í Garðakirkju er samstarfsverkefni kirknanna í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi, þ.e. Ástjarnar-, Hafnarfjarðar-, Víðistaða-, Bessastaða-, Vídalíns- og Fríkirkjunnar.