27. feb. 2026

Langir fimmtudagar á bókasafninu í mars

Bókasafn Garðabæjar mun bjóða gestum og gangandi upp á fjölbreytt erindi á löngum fimmtudögum í mars.

Bókasafn Garðabæjar mun bjóða gestum og gangandi upp á fjölbreytt erindi á löngum fimmtudögum í mars. Erindin hefjast klukkan 19:00, öll velkomin og ókeypis inn.

Dagskrá:

5. mars kl.19:00 Sögufélag Garðabæjar heldur áhugavert erindi fyrir söguþyrsta Garðbæinga og utanbæjarfólk.

12. mars kl. 19:00 Hringur Hafsteinsson hjá Gagarín leiðir gesti í ferðalag um tilurð og þróun Minjagarðsins á Hofsstöðum, frá fyrstu hugmyndum til metnaðarfullrar miðlunar á sögu Garðabæjar.

Viðburður á Facebook

19. mars kl.19:00 Margrét Eggertsdóttir rannsóknarprófessor hjá Stofnun Árna Magnússonar flytur áhugavert erindi: Vídalínspostilla - frægustu predikanir Íslands. Hver var boðskapur Jóns Vídalíns og áhrif postillunnar á íslenskt samfélag? 

Viðburður á Facebook

26. mars kl. 19:00 Garðakirkja fagnar 60 ára afmæli frá endurvígslu kirkjunnar árið 1966 í tilefni af því verður fjallað um sögu þessa forna og merka kirkjustaðar. Hrannar Bragi Eyjólfsson, bæjarfulltrúi, og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir segja frá sögu Garðakirkju og mikilvægi hennar í samfélaginu í gegnum tíðina.

Viðburður á Facebook

Langir.fimmtudagar.plakat