Kaldavatnslaust í Hrísmóum og á Garðatorgi 3. mars
Lokað verður fyrir kalt vatn í Hrísmóum og á Garðatorgi að hluta frá klukkan 10:00 til 12:00 á þriðjudaginn. 3. mars.
-
Kaldavatnslaust verður í Hrísmóum og á Garðatorgi að hluta á þriðjudaginn. Sjá svæðið sem um ræðir innan grænu línunnar.
Vegna vinnu vatnsveitu við stofnæð við Hrísmóa og Garðatorg að hluta verður lokað fyrir kalt vatn á svæðinu, þriðjudaginn 3. mars. Áætlað er að lokunin standi yfir frá klukkan 10:00 til 12:00 þann dag. Sjá má á meðfylgjandi mynd svæðið sem um ræðir.
Íbúar eru beðnir um að gæta þess að það sé lokað fyrir kaldavatnskrana þegar farið er að heiman. Einnig að hafa í huga að opna varlega fyrir vatnið aftur, fyrst sem næst kaldavatnsinntakinu til að ná lofti úr lögninni sem getur myndast við lokun sem þessa.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.