5. mar. 2026

Metþátttaka í ungmennaþingi Barnaheilla í Garðabæ og Hafnarfirði

Metþátttaka var í ungmennaþingi Barnaheilla í Garðabæ og Hafnarfirði. Þátttakendur voru úr efstu bekkjum Garðaskóla í Garðabæ, og Lækjarskóla, Setbergsskóla, Víðistaðaskóla, Öldutúnsskóla og Áslandsskóla í Hafnarfirði, ásamt nemendum úr Fjölbrautaskóla Garðabæjar og Flensborg.

Rúmlega 80 ungmenni tóku þátt í öðru ungmennaþingi Barnaheilla um ofbeldi í nánum samböndum, en það var haldið í Skátaheimilinu í Hafnarfirði þann 4. mars. Þátttakendur voru úr efstu bekkjum Garðaskóla í Garðabæ, og Lækjarskóla, Setbergsskóla, Víðistaðaskóla, Öldutúnsskóla og Áslandsskóla í Hafnarfirði, ásamt nemendum úr Fjölbrautaskóla Garðabæjar og Flensborg.

,,Ungmennin sem mættu úr skólunum í Hafnarfirði og Garðabæ voru hreint út sagt stórkostleg. Það var virkilega gagnlegt að heyra þeirra sýn á þetta mikilvæga málefni,“ segir Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra ofbeldisforvarna og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum.

„Mér fannst áberandi hversu virk þau voru í hópavinnunni. Það var líka gaman hversu mörg þeirra töluðu um að þau hefðu lært mikið af því að eiga þetta samtal og hversu skemmtilegt þeim fannst að taka þátt í þinginu.“

Þátttakendum var skipt niður á átta borð með mismunandi umræðuefni sem sneri að ofbeldi í nánum samböndum unglinga. Starfsfólk sem vinnur að ungmennastarfi í skólunum tók að sér að stýra borðumræðum um viðfangsefnin.

Hóparnir færðu sig svo reglulega á milli borða til að ræða málefnið út frá ýmsum hliðum m.a. með það að markmiði að læra að þekkja muninn á heilbrigðum og óheilbrigðum samskiptum, þekkja birtingamyndir ofbeldis, hvaða úrræði og aðstoð er í boði og um mikilvægi fræðslu og frovarna. 

Barnaheill fengu styrk frá dómsmálaráðuneyti til að halda ungmennaþing á sex stöðum víðs vegar um land. Niðurstöður af þingunum verða sendar til þátttakenda, skólayfirvalda, lögreglu og sveitarstjórnarfólks á vordögum, og verða nýttar til að byggja upp betra forvarnastarf og viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Þá verða niðurstöðurnar kynntar á sérstöku málþingi Barnaheilla sem haldið verður 29. apríl.

Nánar má lesa um verkefnið á vef Barnaheilla.