Hagnýtar upplýsingar á kortavef Garðabæjar
Kortavefur Garðabæjar er einn vinsælasti vefur sveitarfélagsins og mikið heimsóttur af íbúum. Á Kortavefnum má nálgast ýmsar upplýsingar um bæjarlandið, teikningar af húsbyggingum og framkvæmdaráætlun.
-
Á kortavef Garðabæjar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar.
Kortavefur Garðabæjar er einn vinsælasti vefur sveitarfélagsins og mikið heimsóttur af íbúum. Á Kortavefnum má nálgast ýmsar upplýsingar um bæjarlandið, teikningar af húsbyggingum og framkvæmdaráætlun.
Kortavefurinn veitir m.a. upplýsingar um staðsetningu lagna, teikningar af öllum húsum í Garðabæ, snjómokstur, fornminjar og framkvæmdaráætlun bæjarins fyrir hvert ár. Einnig er hægt að finna bekki í sveitarfélaginu, leiksvæði og grenndargáma. Kortavefurinn er einnig tengdur skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þar sem nálgast má skipulög í sveitarfélaginu.
Til að nota hina ýmsu möguleika á kortinu þarf að haka í viðkomandi reit í upplýsingaglugganum á vefnum efst til hægri og þá birtast upplýsingarnar á kortin
Til að finna teikningar af húsum þarf að stækka kortið svo húseignin sjáist með því að smella nokkrum sinnum á + takkann neðst til hægri, haka í „Teikningar af byggingum“ í upplýsingaglugganum og svo smella á appelsínugula depilinn á viðkomandi húsi