Ný aðstaða í Miðgarði tekin í notkun á næstu misserum
Á næstu misserum verður ný og fjölbreytt aðstaða á annarri hæð Miðgarðs tekin í notkun. Bæjarráð Garðabæjar skellti sér nýverið í heimsókn í Miðgarð og kynnti sér stöðu framkvæmda.
Bæjarráð Garðabæjar fór nýverið í vettvangsferð í Miðgarð til að kynna sér uppbyggingu og stöðu framkvæmda á annarri hæð hússins. Framkvæmdir ganga vel og á næstu misserum verður nýtt og fjölbreytt rými tekið í notkun sem mun styrkja starfsemina í húsinu enn frekar.
Rýmið sem um ræðir spannar 900 fermetra. Þar verður fjölbreytt og opin aðstaða sem mun þjóna breiðum hópi notenda. Í rýminu verður til að mynda leikrými fyrir yngstu kynslóðina, kaffitería með framreiðslueldhúsi, skrifstofur, fundarsalir og tækjasalur. Skrifstofur og fundaraðstaða munu nýtast starfsfólki Miðgarðs, en jafnframt verða þar góð tækifæri fyrir frjáls félög í bænum til að halda fundi og skipulagsvinnu.

Nú stendur yfir lokafrágangur á um 900 fermetra rými á annarri hæð Miðgarðs. Hér verður opin og sveigjanleg aðstaða sem mun þjóna breiðum hópi.
Þegar framkvæmdum við fjölnota rýmið er lokið hefst vinna við innréttingu 600 fermetra rýmis á sömu hæð þar sem Sjúkraþjálfun Garðabæjar mun reka sjúkraþjálfunarstöð. Áætlað er að þeim framkvæmdum ljúki á fyrri hluta ársins, starfsemin hefst þá í beinu framhaldi og verður mikilvæg viðbót við heilsutengda þjónustu til íbúa.

Í heimsókn bæjarráðs var einnig farið víðar um húsið og sú fjölbreytta starfsemi sem þegar fer þar fram skoðuð.
Miðgarður er fjölnota íþróttahús sem gegnir lykilhlutverki í íþrótta- og félagslífi Garðbæinga.
