11. feb. 2026

Nýtt svæði á bókasafninu fyrir yngstu gestina

Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi hefur opnað nýtt og sérstakt leik- og lestrarsvæði ætlað börnum. 

Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi hefur opnað nýtt og sérstakt leik- og lestrarsvæði ætlað börnum frá fæðingu til sjö ára aldurs. Svæðið er afmarkað með fallegu hliði sem býður börnum inn í ævintýraheim þar sem ímyndunaraflið fær að ráða ríkjum.

Nýja leiksvæðið var tekið formlega í notkun þegar hópur barna af leikskólanum Bæjarbóli söng nokkur vel valin lög og áður en klippt var á borða með aðstoð Almars Guðmundssonar, bæjarstjóra Garðabæjar.

Hér geta fjölskyldur notið samveru og bókalesturs í rólegu og þægilegu umhverfi. 

Nýja rýmið er notalegt og hannað með það að markmiði að börn og aðstandendur geti dvalið áhyggjulaus í barnadeild bókasafnsins. Nú er svolítil reynsla komin á nýja barnahornið og Margrét Berndsen Sigurgeirsdóttir, forstöðumaður safnsins, segir það falla vel í kramið hjá gestum. Svæðið er skýrt afmarkað með skilrúmum og bókaskápum og inni í því eru þrír litlir „kofar” sem börn geta skriðið inn í – og jafnvel foreldrar líka.

„Við viljum að heimsóknir í safnið verði sjálfsagður hluti af menningaruppeldi barna og unglinga,” segir Margrét. Hún segir jafnframt að nýja svæðið hafi orðið til vegna beinna ábendinga frá foreldrum sem nýta safnið reglulega. „Foreldrar hafa bent á mikilvægi þess að tryggja yngstu börnunum öruggt umhverfi þar sem þau geta leikið sér og foreldrar verið áhyggjulausir,“ bætir hún við.

Börnin völdu nokkrar góðar bækur og fengu bæjarstjórann til að lesa fyrir sig.

Með nýja leik- og lestrarsvæðinu vonast Margrét og starfsfólk bókasafnsins til að efla enn frekar ánægjulega upplifun barna og fjölskyldna og hvetja til lestrar- og menningarþátttöku frá allra fyrstu árum barna.

IMG_3935