17. okt. 2025

Óperusvið á Garðatorgi á Garðabæjargala

Söngvarar frá Óperudögum breyta Garðatorgi í óperusvið á fjölskylduvænu Garðabæjargala. 

 

Söngvarar frá Óperudögum breyta Garðatorgi í óperusvið á fjölskylduvænu Garðabæjargala þann 18. október. Komið og njótið hljómburðarins og frábærra gullradda í þessu geysistóra rými og upplifið Garðatorg á algjörlega nýjan hátt!

Fram koma söngvararnir Dísella Lárusdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Gissur Páll Gissurarson og Kristján Jóhannesson og Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanóleikari.

Aðgangur er öllum opinn og ókeypis.

 

Viðburður á Facebook.