22. nóv. 2024

Rafræn könnun á heilsu, líðan og velferð ungs fólks

SSH gerir nú rafræna könnun á heilsu, líðan og velferð ungs fólks á aldrinum 16-25 ára. Við vonum að ungmenni í Garðabæ gefi sér tíma til að svara könnuninni.

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) gera nú rafræna könnun á heilsu, líðan og velferð ungs fólks 16-25 ára og upplifun þeirra á aðgengi að þjónustu í tengslum við forvarnir og geðrækt í sveitarfélaginu sínu. Einnig er spurt um væntingar til fjölbreyttari þjónustu og aðgengi að upplýsingum um framboð þjónustu.

Starfshópur á vegum SSH er að vinna að samræmdum viðmiðum fyrir öll sveitarfélögin um forvarnir og geðrækt ungs fólks 16-25 ára. Lögð er áhersla á að viðmiðin byggi á þörfum og afstöðu ungs fólks til stuðnings og þjónustu þegar kemur að forvörnum og geðrækt. Könnunin er liður í að afla þessara upplýsinga.

Maskína framkvæmir könnunina og hlekk á hana má finna hérna, bæði á íslensku og ensku. Einnig má sjá QR-kóða sem vísar á könnunina hér fyrir neðan. Upplýsingar um persónuverndarstefnu Maskínu er að finna á heimasíðu Maskínu.

Qr-maskina

Í framhaldi af spurningakönnuninni verður ungu fólki á höfuðborgarsvæðinu boðið að taka þátt í vefumræðuborði til þess að dýpka svör sem berast í könnuninni.

Við vonum að ungmenni í Garðabæ gefi sér tíma til að svara könnuninni en áætlað er að það taki um 5 til 10 mínútur.