2. jún. 2025

Reglur um lagningu ferðavagna

Hér má finna upplýsingar um það sem ber að hafa í huga við lagningu ferðavagna samkvæmt umferðarlögum.

  • Ekki má leggja ökutæki þannig að það geti valdið hættu eða óþarfa óþægindum fyrir aðra umferð.

Undanfarið hefur þjónustuveri Garðabæjar fengið nokkrar ábendingar og kvartanir vegna ferðavagna (hjólhýsa, húsbíla, fellihýsa, eftirvagna o.þ.h.) sem lagt er í íbúðargötur bæjarins. Margir þessara vagna eru stórir og byrgja sýn ökumanna og slíkt skapar mikla hættu.

Að gefnu tilefni minnum við á þær reglur sem gilda um lagningu ökutækis.

Samkvæmt umferðalögum eru tjaldvagnar, fellihýsi, hjólhýsi, kerrur og þess háttar vagnar flokkaðir sem ökutæki. Því gilda sömu reglur um lagningu ferðavagna og um önnur ökutæki. Þannig má t.d.:

  • Ekki stöðva ökutæki eða leggja því þannig að valdið geti hættu eða óþarfa óþægindum fyrir aðra umferð.
  • Einungis stöðva eða leggja ökutæki hægra megin í akstursstefnu.
  • Ekki stöðva eða leggja ökutæki á stöðum sem ekki eru ætlaðir fyrir umferð slíkra ökutækja, svo sem gangstétt, göngustíg, göngugötu, hjólarein eða hjólastíg. Sama á við um umferðareyjar, grassvæði eða aðra svipaða staði.
  • Ekki leggja þannig að skyggi á umferðarmerki eða umferðarljós.
  • Ekki leggja að hluta eða í heild fyrir framan innkeyrslu að húsi eða lóð.
  • Ekki leggja í snúningshaus botnlangagötu.
  • Ekki leggja þannig að hindri aðgang að öðru ökutæki eða færslu þess af staðnum.
  • Ekki leggja við vatnshana slökkviliðs.
  • í veggöngum, undir brú eða á brú, nema sérstaklega sé ráð fyrir því gert

Nánari upplýsingar um eftirvagna má finna á vef Samgöngustofu.