Sumardagurinn fyrsti í Garðabæ
Farið verður í skrúðgöngu og boðið upp á skemmtidagskrá í Miðgarði með töframönnum, andlitsmálningu, hoppukastala, veltibíl og tónlist.
-
Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá í Garðabæ í tilefni sumardagsins fyrsta. Farið verður í skrúðgöngu frá Hofstaðaskóla í Miðgarð klukkan 14:00.
Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá í Garðabæ í tilefni sumardagsins fyrsta. Skátafélagið Vífill sér um dagskrána.
Farið verður í skrúðgöngu frá Hofstaðaskóla klukkan 14:00 þar sem Blásarasveit Tónlistarskólans í Garðabæ sér um tónlistina. Gengið verður í Miðgarð, þar verður hægt að klifra í klifurvegg, hoppa í hoppukastölum, veltast um í veltibíl og fá andlitsmálun. Einnig verða töframenn á svæðinu.
Melkorka Rós, Aníta Rós, VÆB og Egill Spegill halda uppi stuðinu.
Hægt verður að fá sér ýmsar kræsingar á 2. hæð hússins.