28. maí 2025

Upptaka af íbúafundi um deiliskipulagstillögur fyrir miðbæ og Móa

Upptaka af kynningu á deiliskipulagstillögum um miðbæ Garðabæjar og Móa eru aðgengilegar á vef Garðabæjar ásamt tillögunum sjálfum.

Haldinn var opinn íbúafundur í Sveinatungu þann 27. maí þar sem fram fór forkynning á deiliskipulagstillögum sem ná yfir miðbæ Garðabæjar og Móa. Fundurinn var vel sóttur og sátu Björg Fenger formaður skipulagsnefndar, Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs Garðabæjar og Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri fyrir svörum íbúa ásamt Jóhönnu Helgadóttur arkitekt og skipulagsfræðing hjá Nordic Office of Architecture og fulltrúum frá THG arkitektum, þeim Frey Frostasyni og Klöru Sól Ágústsdóttur.

Upptöku af kynningunni má nálgast hér fyrir neðan.

https://vimeo.com/1088387354

Tillögurnar eru aðgengilegar í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og hérna á vef Garðabæjar. Frestur til að skila inn ábendingum vegna tillagnanna er til miðvikudagsins 18. júní.

Miðbær Garðabæjar, svæði I og II. Tillaga að breytingu deiliskipulags

Tillagan nær til lóðanna Garðatorgs 1 (Bónus og Hönnunarsafn), Garðatorgs 5A (yfirbyggð göngugata) og Hrísmóa 19 (bílastæðalóð). Tillagan gerir ráð fyrir um 60 íbúðum í 6 hæða nýbyggingu í norðurhluta byggingarreits, með atvinnuhúsnæði á jarðhæð Garðatorgs 1 og á suðurhluta byggingareits er gert ráð fyrir 4 hæða atvinnuhúsnæði.

Móar, tillaga að deiliskipulagi eldri byggðar

Tillagan nær til Hrísmóa, Lyngmóa og Kjarrmóa. Að mestu eru þau ákvæði sem stuðst var við í uppbyggingu svæðisins óbreytt. Helstu breytingar frá núverandi ástandi nær til gatnakerfis í Hrísmóum. Markmið þeirra breytinga er að auka öryggi vegfarenda og samspil umferðar við miðbæ Garðabæjar.