20. sep. 2022 Bókasafn Menning og listir Urriðaholt

Urriðaholtssafn opnaði með fjölskyldustund

Urriðaholtssafn opnaði með fjölskyldustund laugardaginn 17.september en Urriðaholtssafn er bókasafn, menningar- og upplýsingamiðstöð, staðsett við Vinastræti 1-3 í Urriðaholtsskóla. Safnið starfar í samstarfi við skólann og þjónar honum og almenningi.

  • Urriðaholtssafn
    Urriðaholtssafn var opnað með fjölskyldustund.

Urriðaholtssafn er útibú Bókasafns Garðabæjar og eru því nú þrjú almenningsbókasöfn í Garðabæ. Auk Urriðaholtssafn er Álftanessafn staðsett við Eyvindarstaðaveg og aðalsafnið á Garðatorgi 7.

Urriðaholtssafn er opið fyrir gesti og gangandi alla fimmtudag á milli klukkan 13 til 18. Einnig er opið fyrsta laugardag í mánuði á milli klukkan 11 og 15. Afgreiðslutíminn verður svo endurskoðaður á nýju ári.

Laugardaginn 17.september sl. var safnið opnað í fyrsta sinn fyrir gesti. Var þá boðið upp á perlusmiðju fyrir fjölskylduna og boðið upp á léttar veitingar. Margir lögðu leið sína á nýtt safn bæði til að taka þátt í perlusmiðju og ná sér í bækur.

Ef þú lumar á bók eða bókum sem þú vilt gefa framhalds líf tekur starfsfólk bókasafnsins á móti bókagjöfum í Urriðaholtssafni á afgreiðslutíma. Safnið sækist eftir nýjum eða nýlegum bókum, gefnar út árið 2017 og síðar.

Allir eru hjartanlega velkomnir. Bókasafnið er þinn staður.

Urriðaholtssafn var opnað með fjölskyldustund.