19. jan. 2023

Varhugavert ástand getur skapast samhliða asahláku á morgun

Á morgun föstudag er gert ráð fyrir asahláku í kjölfar hlýnandi veðurs eins og komið hefur fram í fréttum frá Veðurstofu Íslands. Eftir langan frostakafla stefnir í að það verðir allt að 10 stiga hiti á láglendi með rigningu.

  • Varhugavert ástand samhliða asahláku
    Asahláka getur myndast í kjölfar hlýnandi veðurs. Af því tilefni eru húseigendur beðnir um að hreinsa snjóhengjur og grýlukerti af húsþökum í dag. Einnig er mikilvægt að hreinsa vel frá niðurföllum til að minnka líkur á að vatn flæði inn í hús.

Á morgun föstudag er gert ráð fyrir asahláku í kjölfar hlýnandi veðurs eins og komið hefur fram í fréttum frá Veðurstofu Íslands. Eftir langan frostakafla stefnir í að það verðir allt að 10 stiga hiti á láglendi með rigningu. 

Af þessu tilefni vill Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu ítreka við húseigendur, að þeir hreinsi snjóhengjur og grýlukerti af húsþökum í dag. Ástæðan er sú að við þessar erfiðu veðuraðstæður geti fólki stafað hætta af þegar snjór og ís fellur niður. Við slíkar aðstæðu getur einnig orðið umtalsvert eignatjón. Einnig er mikilvægt að hreinsa vel frá niðurföllum til að minnka líkur á að vatn flæði inn í hús. Talsvert eignatjón getur orðið af slíkum vatnstjónum eins og þekkt er, sem í mörgum tilfellum er hægt að koma í veg fyrir. 

SHS vill einnig benda á að ef fólk beitir hálkuvörnum við húsnæði, er ráðlagt að nota sand en ekki salt.