Vinagarður opnaður
Nú opnum við Vinagarð í Urriðaholti! Miðvikudaginn 28. júní klukkan 15:00 verður haldin formleg opnunarhátíð í Urriðaholtinu.
Nú opnum við Vinagarð í Urriðaholti! Miðvikudaginn 28. júní klukkan 15:00 verður haldin formleg opnunarhátíð í Urriðaholtinu. Garðabær býður upp á léttar veitingar og þrautir í nýjum leiktækjum og á nýjum íþróttavöllum.
Vinagarður er bæjargarður þar sem krakkar á öllum aldri geta notið útivistar. Í Vinagarði er allt til alls, meðal annars fótboltavöllur, körfuboltavöllur, líkamsræktar tæki og auðvitað er þar að finna ærslabelg.
Á miðvikudag verður dagskrá fyrir alla fjölskylduna - ræður fyrir fullorðna og þrautir fyrir börnin.
Verið öll velkomin!