Beint í efni

Vor­verkin í Garða­bæ

Fréttir
05.05.2023

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Vorhreinsun lóða hefst á næstu dögum.

Vorhreinsun lóða hefst á næstu dögum.
Eins og síðustu ár eru Garðbæingar hvattir til að hreinsa lóðir sínar í sameiginlegu átaki dagana 8-19. maí. Starfsmenn bæjarins og verktakar verða á ferðinni þessa daga og hirða garðúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk.
Farið verður á milli allra hverfa bæjarins og nánari upplýsingar um hvenær verður hirt úr hvaða hverfum má sjá hér að neðan:
8. til 11. maí 2023: Flatir- Ásgarður-Fitjar-Hólar-Ásar-Grundir-Sjáland-Arnarnes-Akrar-Vífilsstaðir-Urriðaholt
12. -15. maí 2023: Tún-Mýrar-Garðatorg-Móar-Byggðir-Lundir-Búðir-Bæjargil-Hæðarhverfi-Hnoðraholt
16.-19. maí 2023: Álftanes-Garðahverfi-Hleinar-Prýðar og við Álftanesveg
Gerum Garðabæ að snyrtilegasta bæ landsins!

Vorverkin í Garðabæ - Garðabær