Beint í efni
IS

50. (1958). fundur

22.12.2020
Bæjarráð Garðabæjar

50. (1958). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði

22.12.2020

Kl. 08:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Eiríkur Björn Björgvinsson - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
  • Hildigunnur Árnadóttir - yfirfélagsráðgjafi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði samkvæmt heimild í VI. bráðarbirgðarákvæði við sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, sbr. lög nr. 18/2020, sbr. auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra nr. 1076/2020 og samþykkt bæjarstjórnar frá 19. nóvember 2020.

Dagskrá

Málsnúmer 2001444

01

COVID-19 neyðarstig almannavarna.

Bæjarstjóri sagði frá því að samkvæmt ákvörðun almannavarna er sveitarfélögum væri heimilt að hafa flugeldasýningar og mun Hjálparsveit Garðabæjar vera með sýningu við Arnarvoginn á gamlárskvöld. Fólk verður hvatt til að safnast ekki saman til að njóta sýningarinnar heldur finna aðrar lausnir.

Bæjarstjóri fór yfir stöðuskýrslu almannavarna, dags. 21.12.2020 og greindi frá stöðu mála varðandi aðgang að bóluefni og undirbúning bólusetninga.

Ný reglugerð þar sem takmarkanir á skólastarfi verða rýmkaðar hefur verið birt og mun gilda frá 1. janúar 2021.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir stöðu mála á sínu sviði.

Bæjarfulltrúi, Jóna Sæmundsdóttir var á fundi bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 1911410

02

Dýjagata 3 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Diana Tik Yan Poon, kt. 230384-5339, leyfi til að stækka hús í byggingu að Dýjagötu 3.

Málsnúmer 2008010

03

Litlabæjarvör 21 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Kristófer Elí Guðjónssyni, kt. 040994-3009, leyfi til að byggja einbýlishús að Litlabæjarvör 21.

Málsnúmer 2008067

04

Litlabæjarvör 23 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Atla Baldvin Unnsteinssyni, kt. 180756-4779, leyfi til að byggja einbýlishús að Litlabæjarvör 23.

Málsnúmer 2011349

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Bakkaflöt 12.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um byggingu nýs einbýlishúss og niðurrifi eldra húss á lóðinni við Bakkaflöt 12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Bakkaflatar 7, 9, 10, 11 og 14.

Málsnúmer 2012115

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Smáraflöt 12.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Flata í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við núverandi hús að Smáraflöt 12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal tillöguna eigendum Smáraflatar 10 og 14 og Stekkjarflatar 13, 15 og 17.

Almar Guðmundsson, vék sæti við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2010462

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 22.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna lóðarinnar við Blikanes 22, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Gunnar Einarsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 2010246

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis vegna lóðanna við Grenilund 10 og 12.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Lundahverfis vegna lóðanna við Grenilund 10 og 12, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 2010451

09

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi á lóðinni við Kirkjulund 17.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á skipulagsskilmálum sem gilda fyrir lóðina við Kirkjulund 17. Starfsemi með brennsluofn fyrir dýrahræ og staðsetning gáma á lóð með metan kútum verður ekki talin vera í samræmi við yfirbragð og eðli starfsemi á miðsvæði eins og svæðið er skilgreint í aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.

Málsnúmer 2011173

10

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar að Víkurgötu 1-7.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Víkurgötu 1-7, þar sem sótt er um að skipta neðsta húsinu í raðhúsaröðinni í tvær íbúðir. Fyrir liggur neikvæð umsögn deiliskipulagshöfunda.

Málsnúmer 2012153

11

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 5-7.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga austurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Maríugötu 5-7, samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga. Tillagan gerir ráð fyrir skiptingu lóðanna og fjölgun íbúða um 8 á hvorri lóð.

Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 895.650 á íbúð m.v. BVT 747,7 stig í desember 2020 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Málsnúmer 2009325

12

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðarinnar við Tunguás 8.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfi) í tilefni umsóknar um stækkun byggingarreits vegna viðbyggingar við núverandi hús við Tunguás 8, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Tunguáss 4, 5, 6, 7 og 9 og Víðiáss 3 og 5 og Arnaráss 13, 15, 17 og 19.

Málsnúmer 2009610

13

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra vegna lóðar fyrir dælustöð.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna lóðar fyrir dælustöð við Hraunsholtsbraut, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.

Málsnúmer 2012070

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness vegna breytinga á byggingarreitum lóða við Mávanes og Blikanes.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Arnarness samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan gerir ráð fyrir byggingarreitum fyrir neðri hæð á framlóð húsa ofan götu við Blikanes og Mávanes. Tillagan skal auglýst með áberandi hætti og kynnt íbúum og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða annan fullnægjandi hátt.

Málsnúmer 1912201

15

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna stígakerfis í upplandi.

Lögð fram.

Málsnúmer 2010333

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 vegna breytingar á landnotkun lóðar við Brekkuás 2.

Lögð fram.

Eiríkur Björn Björgvinsson, vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 1906094

17

Skipun stýrihóps vegna innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Bæjarráð samþykkir að skipa eftirfarandi einstaklinga í stýrihóp vegna innleiðingar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Almar Guðmundsson, formaður fjölskylduráðs.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar.

Björg Fenger, formaður íþrótta- og tómstundaráðs.

Sara Dögg Svanhildardóttir, fulltrúi minnihlutans.

NN-stúlka, fulltrúi ungmennaráðs.

NN - drengur, fulltrúi ungmennaráðs.

Sigurður Garðar Flosason, fulltrúi fjölskyldusviðs.

Haldóra Pétursdóttir, fulltrúi fræðslu- og menningarsviðs.

Sóveig Helga Jóhannsdóttir, fulltrúi tækni- og umhverfissviðs.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fulltrúi fjármála- og stjórnsýslusviði.

Málsnúmer 2009611

18

Staðfesting á Breeam-vottun vegna Vífilsstaðalands.

Lagt fram minnisblað Eflu verkfræðistofu varðandi rammaskipulag Vífilsstaðalands þar sem lýst er áhrifum á núverandi húsnæði og innviði með hliðsjón af kröfum Breeam.

Bæjarráð staðfestir að Breeam umhverfisvottun er hluti rammahluta aðalskipulags Vífilsstaðalands og deiliskipulagsáfanga fyrir Vetrarmýri og norðurhluta Hnoðraholts.

Í því felst m.a.

„Garðabær staðfestir að sveitarfélagið muni eins og kostur er endurnýta efni sem fellur til við enduruppbyggingu og aðlögun á vegum svæðisins. Ef þess er ekki kostur verður lagt upp með að nýta efnið á svæðum sem þess er þörf. Ef farga þarf efni verður það gert á viðeigandi hátt og í samræmi við reglur yfirvalda.

Gert er ráð fyrir að mest allt efni sem fellur til vegna endurbóta og rifa á vegum verði nýtt við nýlagningar eða endurbætur. Ef að einhverjum ástæðum það nýtist ekki sem slíkt er fyrirhugað að nota það í grunna á svæðinu sem fylliefni vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar.

Í verklýsingum og útboðsgögnum, t.d. fyrir vegaframkvæmdir og uppbyggingu mannvirkja verða lögð fram skilyrði um meðhöndlun núverandi byggingarefna. Með því má tryggja að efni verði nýtt innan skipulagssvæðisins og ef farga þarf efnum að það verði gert á viðeigandi hátt.“

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2012254

19

Samantekt Veitna ohf. eftir kuldakast 4.-6. desember, dags. 15.12.20.

Bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir samantekt Veitna þar sem farið var yfir stöðu mála að aflokna kuldakasti sem varð helgina 4. - 6. desember sl.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2012253

20

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi tillögur Velferðarvaktarinnar til ríkis og sveitarfélaga í mótvægisaðgerðum vegna COVID-19, dags. 15.12.20.

Bæjarráð vísar tillögum velferðarvaktarinna til umfjöllunar á fjölskyldusviði og fræðslu- og menningarsviði ásamt því að vísa tillögunum til kynningar í fjölskylduráði, skólanefnd, leikskólanefnd og íþrótta- og tómstundaráði.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2009461

21

Bréf umhverfisráðuneytisins varðandi mögulega breytingu á heilbrigðiseftirlitssvæðum, dags. 14.12.20.

Bæjarráð samþykkir að Garðabær taki þátt í viðræðum sveitarfélaganna Kópavogsbæjar, Hafnarfjarðar, Seltjarnarness og Mosfellsbæjar um breytingu á heilbrigðiseftirlitssvæði Kópavogs og Hafnarfjarðar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2012256

22

Bréf Sighvats Arnarsonar varðandi söltun gönguleiða, dags. 15.12.20.

Bæjarráð þakkar góðar ábendingar um hálkuvarnir og fækkun slysa. Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2008632

23

Niðurstöður stofnana um styttingu vinnutíma dagvinnufólks samkvæmt kjarasamningum.

Á fund bæjarráð undir þessum dagskrárlið voru Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og Auður Jóhannsdóttir, deildarstjóri kjaradeildar og gerðu þær grein fyrir vinnu við innleiðingu á styttingu vinnutímans í stofnunum bæjarins.

Niðurstöður liggja fyrir í öllum stofnum bæjarins.

Bæjarráð samþykkir tillögur stofnana um styttingu vinnutímans og felur bæjarstjóra að staðfesta nýtt vinnutímafyrirkomulag fyrir hverja einstaka stofnun til að gilda frá 1. janúar 2021


Málsnúmer 2012205

24

Kynning á drögum um vatnaáætlun fyrir Ísland 2022-2027.

Málsnúmer 2012215

25

Tillaga um að Garðabær birti fundargerðir verkfunda við byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri á heimasíðu Garðabæjar

Bæjarráð samþykkir að vísa til bæjarstjóra að láta kanna hvaða reglur og sjónarmið gilda almennt um birtingu verkfundargerða m.t.t. til gagnsæis, skilvirkni og viðkvæmra viðskiptaupplýsinga.

Bæjarráð samþykkir að á vef Garðabæjar verði birtar upplýsingar um framvindu verksins og framvinduskýrslur gerðar aðgengilegar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2012278

26

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Barna- og fjölskyldustofu, 355. mál., dags. 17.12.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2012279

27

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, 356. mál., dags. 17.12.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2012277

28

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, 354. mál., dags. 17.12.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2012285

29

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um kosningalög, 339. mál., 18.12.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2012193

30

Bréf Alþingis varðandi frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð, 369. mál., dags. 11.12.20.

Lagt fram.

Málsnúmer 2012286

31

Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi lokaskýrslu um tilraunaverkefni um sérstakan húsnæðisstuðning, dags. 17.12.20.

Málsnúmer 1907119

32

Endurskoðun samninga við Hjallastefnunna vegna leikskóla.

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir stöðu mála og viðræðum við Hjallastefnuna um endurskoðun samninga vegna leikskólastarfsemi.

Málsnúmer 2006130

33

Reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.

Bæjarráð samþykkir nýjar reglur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum til að gilda frá 1. janúar 2021.