Beint í efni

Laus störf

Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.

Kynntu þér laus störf hjá Garðabæ hér fyrir neðan.

Grunnskólar

  • Hofsstaðaskóli - þroskaþjálfi

    Hofsstaðaskóli óskar eftir þroskaþjálfa í 50 til 100% starf

    Starfshlutfall
    Fullt starf
    Umsóknarfrestur
    21. apríl 2026
    Sækja um starf
  • Hofsstaðaskóli - textílkennari

    Hofsstaðaskóli auglýsir eftir kennara í textílmennt í 50% starf. 

    Starfshlutfall
    Hlutastarf
    Umsóknarfrestur
    21. apríl 2026
    Sækja um starf
  • Hofsstaðaskóli - myndmenntakennari

    Hofsstaðaskóli auglýsir eftir myndmenntakennara.

    Starfshlutfall
    Fullt starf
    Umsóknarfrestur
    21. apríl 2026
    Sækja um starf
  • Hofsstaðaskóli - ÍSAT kennari

    Hofsstaðaskóli auglýsir eftir kennara til að kenna íslensku sem annað tungumál.

    Starfshlutfall
    Fullt starf
    Umsóknarfrestur
    16. apríl 2026
    Sækja um starf
  • Urriðaholtsskóli - atferlisfræðingur

    Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir atferlisfræðingi til að sinna m.a. stuðningi og þjálfun barna á leik- og grunnskólastigi. Teymisvinna er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. 

    Starfshlutfall
    Fullt starf
    Umsóknarfrestur
    10. apríl 2026
    Sækja um starf
  • Hofsstaðaskóli - umsjónarkennari

    Hofsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara skólaárið 2026-2027. Í skólanum verða um 500 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

    Starfshlutfall
    Fullt starf
    Umsóknarfrestur
    13. apríl 2026
    Sækja um starf

Leikskólar

  • Leikskólinn Akrar - deildarstjóri

    Við leitum að deildarstjóra í okkar frábæra teymi. Ef þú hefur gaman af starfi með börnum og ert til í að vinna með ólíkum einstaklingum eru miklar líkur á að þú fallir vel í hópinn okkar. Starfsandi er góður og einkennist af jákvæðni, gleði og góðri samvinnu.

    Starfshlutfall
    Fullt starf
    Umsóknarfrestur
    10. apríl 2026
    Sækja um starf

Sumarstörf

  • Biðlisti vegna sumarstarfa

    Biðlisti vegna sumarstarfa

    Starfshlutfall
    Hlutastarf
    Umsóknarfrestur
    30. apríl 2026
    Sækja um starf

Laun sumarstarfsfólks 2026

Hér má finna upplýsingar um laun sumarstarfsfólks 2026

Hlunnindi fyrir starfsmenn

Garðabær býður starfsfólki upp á ýmis hlunnindi. Aukin hlunnindi eru sérstaklega í boði fyrir starfsfólk leikskóla.

  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
  • Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Aukin hlunnindi fyrir starfsfólk leikskóla

  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsfólks með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsfólk með lögheimili í Garðabæ
  • 25 % stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunar inn á hverri deild
  • 50% stöðugildi inn á yngstu deildir leikskóla ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild
  • Hægt er að sækja um námstengda styrki til að efla faglegt leikskólastarf
  • Hægt er að sækja um í þróunarsjóð leik- og grunnskóla til að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi í leikskólum