Matjurtagarðar
Garðabær býður íbúum upp á að rækta matjurtir í skipulögðum görðum yfir sumartímann. Einnig eru skólagarðar í boði fyrir börn þar sem þau fá tækifæri til að kynnast ræktun, útiveru og umgengni við náttúruna.
Hlekkur í leigu á görðum opnar í fyrri hluta maí fyrir sumarið 2026.

Matjurtagarðar í Garðabæ
Garðbæingum gefst kostur á að leigja matjurtakassa til ræktunar matjurta á sumrin. Matjurtagarðar eru staðsettir í Hæðahverfi, á Álftanesi og á tveimur stöðum í Urriðaholti.
Helstu upplýsingar
- Leigutími er frá 15. maí til 15. september.
- Matjurtakassar eru 2 x 4 metrar að stærð, eða 8 m², og merktir með númerum.
- Vatn til vökvunar er á öllum svæðum.
- Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með.
- Leiguverð sumarið 2026 - verður 5.500 kr fyrir leigu á matjurtakassa.
- Opnað verður fyrir leigu í fyrri hluta maí 2026. Tilkynning um nákvæma dagsetningu og tímasetningu þegar umsóknarvefur opnar verður settur inn hér nokkrum dögum áður. Þá verður einnig hægt að nálgast hlekk hér beint á umsóknarvef fyrir matjurtakassana.
Hver einstaklingur getur aðeins leigt einn matjurtakassa. Að leigutíma loknum þarf að taka allar matjurtir upp og skila kössunum tómum.
Hvar eru matjurtagarðarnir?

Á kortavef Garðabæjar má sjá staðsetningar matjurtagarða með því að velja Þjónustu og afþreyingu í valmynd hægra megin og haka við Matjurtagarða.
Hæðahverfi
Í Hæðahverfi eru 21 matjurtakassi í boði. Aðkoma að svæðinu er sunnan leikskólans Hæðarbóls.
Álftanes
Á Álftanesi eru 10 matjurtakassar við hlið gervigrasvallarins. Aðkoma er frá Breiðamýri.
Urriðaholt - Kauptún
Við Kauptún eru 10 matjurtakassar. Aðkoma er frá bílastæðinu í Kauptúni og göngustígur liggur að kössunum.
Urriðaholt - neðan Dýjagötu
Neðan Dýjagötu eru 28 matjurtakassar. Aðkoma er frá botnlanga Dýjagötu og Kinnargötu.
Skólagarðar í Silfurtúni
Börnum gefst tækifæri til að kynnast ræktun, útiveru og umgengni við náttúruna á lifandi og skemmtilegan hátt í Skólagörðunum í Silfurtúni. Garðarnir eru ætlaðir börnum á aldrinum 6–13 ára og eru starfræktir yfir sumartímann.
Skólagarðarnir eru staðsettir í Silfurtúni, með aðkomu við leikskólann Bæjarból. Leiðbeinandi er á staðnum til að aðstoða börnin.
Helstu upplýsingar
- Skólagarðar eru opnir á virkum dögum kl. 8:00–16:00.
- Garðarnir eru ekki daggæsla.
- Skráning fer fram á staðnum frá 2. júní.
- Greitt er efnisgjald að upphæð 5.500 kr.
- Eldra fólki býðst að leigja garð í skólagörðunum eftir 6. júní.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Garðyrkjudeild Garðabæjar í tölvupósti á smarig@gardabaer.is
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.