Beint í efni
IS

Arki­tekta­ganga um Arn­ar­nes með Pétri og Sig­ríði

Viðburðir

Arnarnes

fimmtudagur, 25. júní 2026 kl. 20:00

Í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar er boðið upp á göngu um Arnarnesið með Pétri Ármannssyni arkitekt og Sigríði Sigurjónsdóttur forstöðumanni Hönnunarsafns Íslands.

Þátttaka er gjaldfrjáls en miðað er við hámark 40 þátttakendur sem þurfa að skrá sig HÉRNA.

Arnarnesið er fyrsta skipulagða hverfið þar sem kveðið var á um að byggingar skyldu hannaðar af arkitektum. Á vestanverðu nesinu er að finna perlur úr íslenskri byggingarlistasögu frá sjöunda áratugnum, meðal annars einbýlishús eftir Manfreð Vilhjálmsson, Helga Hjálmarsson og Gunnar Hansson.

Lagt verður af stað frá bílastæðinu við hliðina á Mávanesi 1.

Gangan er liður í sögugönguröð sem haldin er í tilefni afmælisins.

Arkitektaganga um Arnarnes með Pétri og Sigríði - Garðabær