Bókmenntaganga á Garðaholti
Garðakirkja
kl. 18:00 - 19:00

Bókmenntaganga með rithöfundinum Rögnu Sigurðardóttir sem segir frá staðháttum og sögu á Garðaholti og Álftanesi, les uppúr og fjallar um skáldsöguna sína Útreiðartúrinn á lifandi og skemmtilegan hátt.

Norræna félagið í Garðabæ býður upp á fróðlega bókmenntagöngu með rithöfundinum Rögnu Sigurðardóttir. Gangan er í samstarfi við Bókasafn Garðabæjar. Ragna segir frá staðháttum og sögu á Garðaholti og Álftanesi, les uppúr og fjallar um skáldsöguna sína Útreiðartúrinn á lifandi og skemmtilegan hátt. Áætlaður göngutími er um klukkustund og lagt verður af stað frá bílastæðinu við Garðakirkju. Gangan er opin öllum áhugasömum og boðið verður uppá kakó og kleinur að göngu lokinni.