Beint í efni

Diskó­súpu­veisla og hjóla­st­uð með Slow Food og Dr. Bæk

Viðburðir

Bókasafn Garðabæjar

Skerum, söxum í súpu og borðum á meðan Dr. Bæk skoðar hjólhesta fyrir börn og fullorðna.

Þann 25. apríl fögnum við alþjóðlega diskósúpudeginum 2026, degi sem minnir okkur á það gríðarlega vandamál sem matarsóun er á heimsvísu og hvetur okkur til að breyta hráefni, sem annars hefði endað í ruslinu, í dýrindis máltíð. Klukkan 11 skerum við, söxum, hreyfum okkur í takt og töfrum fram litríkan dans úr alls kyns hráefni sem hefði verið hent fyrir litlar sakir – aðeins krumpað, svolítið undarlegt í laginu eða komið fram yfir dagsetningu, en enn í toppstandi. Um hádegi ættu fyrstu ilmandi skammtarnir úr pottunum að koma á borð, og hver sem vill er velkominn að taka þátt í gleðinni, hvort sem það er í brettadansi við skurðarbrettið eða bara til að njóta súpunnar. Dóra Svavarsdóttir, formaður Slow Food á Íslandi, verður Diskósúpustjóri dagsins og hlakkar til að taka á móti ykkur með sleifina á lofti og bros á vör. Dr. BÆK verður einnig á staðnum og býður uppá ástandskoðun hjólhesta fyrir börn og fullorðna. Verið innilega velkomin Þessi viðburður er hluti af Viku 17, sem er alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á bókasöfnum, en hún fer fram í 17. viku ársins. Í tilefni vikunnar verða viðburðir tengdir heimsmarkmiðunum á bæði Bókasafni Garðabæjar og á bókasöfnum vítt og breitt um landið. Alla vikuna verður barnabókaskiptimarkaður, plokkstangir til leigu, plokkbingó spjöld til þess að taka með sér ásamt öðru.

Diskósúpuveisla og hjólastuð með Slow Food og Dr. Bæk - Garðabær