Garðaprjón - hefjum vetrarstarfið með prjónapartíi
Bókasafn Garðabæjar
þriðjudagur, 22. september 2026 kl. 17:30 - 19:00

Bókasafnið í Garðabæ í samstarfi við Norræna félagið í Garðbæ býður gestum og gangandi í stórskemmtilegt prjónapartí.
Bókasafnið í Garðabæ í samstarfi við Norræna félagið í Garðbæ býður gestum og gangandi í stórskemmtilegt prjónapartí sem er upphafið að starfi Garðaprjóns í vetur en hittingar verða svo annan og fjórða þriðjudag í mánuði kl. 17.
Prjónabær mætir á svæðið og býður uppá vænan afslátt af garni. Þar verður hægt að finna garn og garnvörur fyrir barnateppið en einnig Skjól peysuna eða annað sem fólk er að fitja uppá sína prjóna.
Léttar kaffiveitingar í boði hússins og fjörugur félagsskapur.
Í vetur munum við prjóna saman barnateppi en fólki er að sjálfsögðu frjálst að mæta með hvað sem það hefur fitjað uppá sína prjóna.
Hannyrðaklúbburinn er opin fyrir öll og við hvetjum fólk til þess að koma, bæði reynslubolta og þau sem eru að taka sín fyrstu skref í prjónaskap.