Beint í efni

Leik og Sprell söng- og leik­list­ar­nám­skeið á Álfta­nesi

Viðburðir

Safnaðarheimilið Brekkuskógum

sunnudagur, 14. júní 2026 kl. 13:00 - 16:00

mánudagur, 15. júní 2026 kl. 13:00 - 16:00

miðvikudagur, 17. júní 2026 kl. 13:00 - 16:00

fimmtudagur, 18. júní 2026 kl. 13:00 - 16:00

föstudagur, 19. júní 2026 kl. 13:00 - 16:00

Stórskemmtilegt söng- og leiklistarnámskeið þar sem sköpuð er glæný og glæsileg sýning og sýnt fyrir aðstandendur. Stútfullt af leikjum, söng og sprelli!

Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur. 5 daga námskeið, kennt 3 klukkustundir í senn, verð: 31.900 krónur. Kennari námskeiðsins er Diljá Pétursdóttir. Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á leikogsprell@gmail.com Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar!