Ljóðaskápur frú Vigdísar Finnbogadóttur - sýningaropnun
Bókasafn Garðabæjar
fimmtudagur, 27. ágúst 2026 kl. 18:00 - 19:00

Sýningaropnun í tilefni af 50 ára afmæli Garðabæjar og skyggnumst í Ljóðaskáp Vigdísar Finnbogadóttur.
Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Ljóðaskápur frú Vigdísar Finnbogadóttur.
Í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar býður Bókasafn Garðabæjar í samstarfi við Forsetaembætti Íslands uppá áhugaverða og merkilega sýningu sem leggur áherslu á glæsilegar ljóðabækur íslenskra skálda sem prýtt hafa hillur Ljóðaskáps Vigdísar sem stendur í Thomsenstofu á Bessastöðum.
Eins og Vigdís sagði sjálf í viðtali við Þjóðviljann árið 1982: „Hér er ég að koma upp safni ljóðabóka og eins og sjá má eru þær grannar að vexti en að sama skapi ríkar að innihaldi. Ég stefni að því að koma í þennan skáp ljóðabókum allra þeirra ljóðskálda sem voru hér í skóla og svo allra nútímaskálda íslenskra.“
Við opnunina mun Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona og fyrrverandi bæjarlistarmaður, flytja nokkur vel valin ljóð og boðið verður uppá léttar kaffiveitingar.
Mynd og tilvitnun: Þjóðviljinn 24.04.1982