Beint í efni

Opið hús - Þriðji áfangi Ur­riða­holts­skóla

Viðburðir

Urriðaholtsskóli

miðvikudagur, 13. maí 2026 kl. 16:00 - 18:00

Verið velkomin á opið hús í Urriðaholtsskóla miðvikudaginn 13. maí milli klukkan 16:00 og 18:00

Nú þegar styttist óðfluga í að íþróttamiðstöðin í Urriðaholti, þriðji áfangi Urriðaholtsskóla, sé fullkláruð er áhugasömum boðið að skoða húsnæðið. Innan þriðja áfanga er íþróttasalur og innisundlaug ásamt tilheyrandi rýmum, svo sem útisvæði með pottum og búningsklefum

Fulltrúar frá Garðabæ auk fulltrúa frá verktaka og eftirlitsaðilum verða á svæðinu og svara spurningum áhugasamra

Athugið að gengið er inn frá Vinastræti og við hvetjum þau sem geta til að koma fótgangandi

Verið velkomin að skoða nýtt og glæsilegt rými innan Urriðaholtsskóla.

Viðburður á Facebook