Beint í efni

Opn­un: Lif­andi brons­ið, minn­ing­ar­sýn­ing á verk­um Pét­urs Bjarna­sonar mynd­list­ar­manns,

Viðburðir

Gróskusalurinn

föstudagur, 18. september 2026 kl. 17:00

Sýningin Lifandi bronsið, minningarsýning á verkum Péturs Bjarnasonar myndlistarmanns, verður opnuð í Gróskusalnum við Garðatorg í Garðabæ föstudaginn 18. september kl. 17.

Pétur Bjarnason var íhugull og vinnusamur myndlistarmaður. Hann hafði hlýja nærveru, var glaðvær og einlægur. Eftir Pétur liggja fjölmörg heillandi listaverk, stór og smá, sem samferðamenn fá að njóta víðs vegar um land og raunar einnig víða um heim. Pétur vann til verðlauna í samkeppnum hérlendis og erlendis og iðulega var til hans leitað af ýmsum tilefnum með að útbúa listaverk fyrir fyrirtæki og stofnanir. Eftir hann liggja m.a. mörg vegleg málmlistaverk, sem bera hugkvæmni hans og handverki veglegan vott um listræna hæfileika.

Í tilefni af því að 70 ár eru liðin frá fæðingu Péturs minnast vinir hans og velunnarar hans merka ævistarfs á sviði íslenskrar myndlistar. Minningarsýningin sem er nokkurskonar yfirlitssýning á verkum hans verður opin til 11. október alla daga nema mánudaga milli kl. 12 og 17.

Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur.

Glæsileg sýningarskrá verður til sölu á sýningunni en aðgangur er ókeypis.

Garðabær og Sögufélag Garðabæjar styrkja gerð sýningarinnar.

Viðburður á Facebook.